|
|||
2010-04-28 19:11:18 CEST 2010-04-28 19:12:16 CEST REGLERAD INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirTilkynning um breytingu á útgáfu ríkissjóðs á innlendum skuldabréfamarkaðiÍ ársbyrjun tilkynntu Lánamál ríkisins um áætlaða útgáfu verðtryggðra og óverðtryggðra ríkisbréfa á árinu 2010 fyrir um 170 ma.kr. ásamt því að auka útgáfu ríkisvíxla um 20 ma.kr. Í ársáætluninni kom fram að gefinn yrði út nýr 2ja ára flokkur ríkisbréfa á fyrri hluta ársins þar sem gert væri ráð fyrir 50 ma.kr. sölu að nafnverði í flokknum á árinu. Ákveðið hefur verið að seinka útgáfu á 2ja ára flokknum þar til síðar á árinu og minnka jafnframt áætlaða sölu í flokknum um allt að 20 ma.kr. Einnig að halda útgáfu á ríkisvíxlum óbreyttri á milli ára. Á móti verður útgáfa aukin í RIKB 11 0722 um allt að 15 ma.kr. og í RIKB 19 0226 og RIKB 25 0612 um allt að 25 ma.kr. Tilgangur breytinganna er að auka sveigjanleika útgefanda til að mæta betur eftirspurn markaðsaðila eftir mismunandi flokkum ríkisbréfa samfara því að draga úr endurgreiðsluáhættu ríkissjóðs. Breytingin hefur þannig ekki í för með sér auknar lántökur ríkissjóðs. Aukin útgáfa í RIKB 11 0722 á kostnað 2ja ára flokksins er til að mæta betur eftirspurn fjárfesta, þá sérstaklega erlendra fjárfesta eftir ríkisbréfum með stuttan líftíma, og aukin útgáfa á lengri flokkum óverðtryggðra ríkisbréfa er til að mæta mikilli eftirspurn frá lífeyrissjóðum. Nánari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson hjá Lánamálum ríkisins á alþjóða- og markaðssviði Seðlabanka Íslands í síma 569 9600. |
|||
|