|
|||
2015-02-11 16:50:38 CET 2015-02-11 16:51:38 CET REGLERAD INFORMATION Landsbréf hf. - FyrirtækjafréttirLandsbréf – Sparibréf löng, reglubreytingHér með tilkynnist að Fjármálaeftirlitið hefur staðfest breytingar á reglum fyrir verðbréfasjóðinn Landsbréf - Sparibréf löng. Breytingarnar felast í því að: -- nafni sjóðsins er breytt í Landsbréf - Sparibréf plús -- fjárfestingarheimildum er breytt þannig að: -- lágmark fjárfestingar í ríkistryggðum bréfum fært úr 90% í 50% -- hámark fjárfestingar í innlánum fært úr 10% í 50% -- heimild til fjárfestingar í skammtímasjóðum að hámarki 20% bætt við -- heimild til fjárfestingar í afleiðum að hámarki 10% bætt við -- takmarkanir á meðallíftíma eignasafns teknar út (var 7+ ár) -- opnunartími sjóðsins er styttur og verður frá 9:30-14:30 (var til 15:30) -- heimildir rekstararfélags til töku þóknunar eru rýmkaðar Sjóðfélögum verður send sérstök tilkynning um reglubreytingarnar sem öðlast gildi þegar í stað. Reglur sjóðsins má nálgast á vefsíðu félagsins landsbref.is. Nánari upplýsingar veitir Helgi Þór Arason framkvæmdastjóri Landsbréfa hf. í síma 410 2511. |
|||
|