2014-04-04 11:06:33 CEST

2014-04-04 11:07:34 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Snæfellsbær - Ársreikningur

Ársreikningur Snæfellsbæjar 2013


Góð afkoma af rekstri Snæfellsbæjar árið 2013

Fimmtudaginn 3. apríl 2014 var ársreikningur Snæfellsbæjar 2013 afgreiddur í
bæjarráð til fyrri umræðu í bæjarstjórn.  Eins og sveitarstjórnarlög kveða á
um, skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn. Fyrri
umræða um ársreikninginn var fimmtudaginn 3. apríl 2014 og síðari umræða verður
þriðjudaginn 29. apríl n.k. 



Ársreikningurinn er settur fram samkvæmt reikningsskilum sveitarfélaga.
Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins
vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð
með skatttekjum en í B-hluta eru fyrirtæki sem eru í eigu sveitarfélagsins og
eru rekin sem fjárhagslega sjálfstæðar einingar, sem eru: Félagsheimilið Klifi,
Félagsheimilið Röst, Veitustofnanir Snæfellsbæjar, Hafnarsjóður Snæfellsbæjar,
Húsnæðisnefnd Snæfellsbæjar, Leiguíbúðir með hlutareign og Dvalarheimilið
Jaðar. 



Rekstur Snæfellsbæjar góður

Rekstur Snæfellsbæjar gekk vel á árinu og var rekstrarniðurstaðan nokkuð betri
en áætlun gerði ráð fyrir. 



Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu um 1.847  millj. króna samkvæmt
samanteknum rekstrarreikningi fyrir A- og B-hluta en fjárhagsáætlun gerði ráð
fyrir rekstrartekjum um 1.735 millj. króna. Rekstrartekjur A- hluta námu um
1.460 millj. króna en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir rekstrartekjum um 1.387
millj. króna. 



Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A-
og B-hluta var jákvæð að fjárhæð um 165 millj. króna en samkvæmt fjárhagsáætlun
var gert ráð fyrir jákvæðri afkomu upp á 61,4 millj. króna. Rekstrarafkoman
varð því töluvert betri en áætlun gerði ráð fyrir, eða sem nemur 103,6 millj.
króna.  Rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð að fjárhæð 107,7 millj. króna en
fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir jákvæðiri afkomu upp á 61,9  millj. króna.
Afkoma A-hluta varð því betri sem nemur 45,8 millj. króna.  Eigið fé
sveitarfélagsins í árslok nam 2.390 millj. króna skv. efnahagsreikningi en þar
af nam eigið fé A-hluta 1.915 millj. króna. 



Laun og launatengd gjöld sveitarfélagsins námu um 850,6 milljónum króna en
starfsmannafjöldi sveitarfélagsins nam 147 stöðugildum í árslok. 



Veltufé frá rekstri var 184 millj. króna og veltufjárhlutfall er 1,38. 
Handbært frá rekstri var 199 millj. króna. 



Heildareignir bæjarsjóðs námu um 3.333 millj. króna og heildareignir
sveitarfélagsins í samanteknum ársreikningi um 4.203 millj. króna í árslok
2013. Heildarskuldir bæjarsjóðs námu um 1.419 millj. króna og í samanteknum
ársreikningi um 1.813 millj. króna, og hækkuðu þar með milli ára um 97
milljónir.  Eigið fé bæjarsjóðs nam um 1.915 millj. króna og eigið fé í
samanteknum reikningsskilum nam um 2.390 millj. króna í árslok 2013. 
Eiginfjárhlutfall er 57,44% á á árinu 2013 en var 57,50 árið áður. 



Fjárfestingarhreyfingar voru 261,3 milljónir og fjármögnunarhreyfingar 6,0
milljónir á árinu 2013. Snæfellsbær fjárfesti á árinu fyrir 261,3 milljónir í
varanlegum rekstrarfjármunum og ný lán voru tekin að upphæð 171,3 milljónir. 
Greidd voru niður lán að fjárhæð 165,3 milljónir. 

Hlutfall reglulegra tekna af heildarskuldum og skuldbindingum er 87,62% hjá
sjóðum A-hluta, en var 82,8% árið 2012, og 90,62% í samanteknum ársreikningi en
var 88,84 árið 2012.  Skv. 64. gr. 2. málsgr. sveitarstjórnarlaga á þetta
hlutfall ekki að vera hærra en 150% 

Álagningarhlutfall útsvars var 14,48 %. Álagningahlutfall fasteignaskatts nam
0,44% á íbúðarhúsnæði og álagningarhlutfall á aðrar fasteignir nam 1,55%. 

Nánari upplýsingar veitir bæjarstjóri, Kristinn Jónasson, í síma 433-6900, eða
á kristinn@snb.is 

Hægt verður að nálgast ásreikninginn á bæjarskrifstofunni Klettsbúð 4,
Hellissandi, sími 433-6900. Einnig á heimasíðu Snæfellsbæjar, www.snb.is.