|
|||
![]() |
|||
2015-08-31 17:51:16 CEST 2015-08-31 17:52:17 CEST REGULATED INFORMATION Sláturfélag Suðurlands svf. - Company Announcement (is)SS kaupir Hollt og Gott ehf.Sláturfélag Suðurlands hefur fest kaup á öllu hlutafé framleiðslufyrirtækisins Hollt og Gott ehf. af meðeiganda sínum Auðhumlu svf. Fyrir kaupin átti SS 50% í Hollu og Góðu. Kaupverðið er trúnaðarmál. Hollt og Gott sérhæfir sig í framleiðslu á fersku salati, brauðsalati, sósum og ýmsum vörum úr grænmeti og ávöxtum. Fyrirtækið var stofnað í júní 1995 af Ágæti og SS og er til húsa að Fosshálsi 1, Reykjavík. Framkvæmdastjóri er Máni Ásgeirsson. Kaupin eru liður í áherslu SS að styrkja sig á framleiðslusviði matvæla. Hjá Hollt og Gott starfa 34 starfsmenn. Frekari upplýsingar veitir: Steinþór Skúlason, forstjóri í síma 575 6000 - steinthor@ss.is Hjalti H. Hjaltason, fjármálastjóri í síma 575 6000 - hjalti@ss.is |
|||
|