|
|||
2015-08-31 18:51:55 CEST 2015-08-31 18:52:56 CEST REGULATED INFORMATION Reitir fasteignafélag hf. - Breytingar á eigin hlutum félagsREITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlunÍ 35. viku 2015 keypti Reitir fasteignafélag hf. 334.414 eigin hluti fyrir 24.062.222 kr. eins og hér segir: Dagsetnin Tími Keyptir Viðskipta-ve Kaupverð Eigin hlutir eftir g hlutir rð viðskipti -------------------------------------------------------------------------------- 24.8.2015 10:52 250.000 71,60 17.900.000 2.716.336 -------------------------------------------------------------------------------- 28.8.2015 11:45 84.414 73,00 6.162.222 2.800.750 -------------------------------------------------------------------------------- Samtals 334.414 24.062.222 -------------------------------------------------------------------------------- Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 19. júní 2015, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 18. júní 2015. Reitir hafa nú keypt samtals 2.800.750 hluti í félaginu sem samsvarar 8,24% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 190.939.064 krónum. Reitir eiga nú samtals 0,37% af heildarhlutafé félagsins. Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 34.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 2.300 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016 en þó aldrei síðar en þann 29. febrúar 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005. |
|||
|