|
|||
2012-08-13 20:08:08 CEST 2012-08-13 20:09:11 CEST REGULATED INFORMATION Eyrir Invest ehf. - ÁrsreikningurEyrir Invest kynnir afkomu á fyrri árshelmingi 2012Traust fjárhagsstaða og áframhaldandi virðisaukning -- Hagnaður á fyrri árshelmingi 2012 nam 18 milljónum evra [H1 2011; -13 milljónir] -- Nettó virði eigna nemur nú 20,3 evrusentum á hlut samanborið við 18,3 evrusenta virði á hlut í ársbyrjun -- Nettó virði eigna hinn 30. júní 2012 var 205 milljónir evra og jókst um 2 milljónir frá ársbyrjun. Eyrir keypti 9% eigin bréfa á tímabilinu fyrir 16 milljónir evra -- Heildareignir eru 380 milljónir evra og eiginfjárhlutfallið er 54% samanborið við 51% í ársbyrjun. Sjóðstaða um mitt ár er 1 milljón evra. Eftir lok uppgjörstímabilsins hefur Eyrir tryggt sér langtímafjármögnun að fjárhæð 22 milljónir evra. -- Stjórn Eyris hefur ákveðið að selja eigin bréf til þess að styrkja fjárhag félagsins enn frekar Kjölfestueignir Eyris eru 33% hlutur í Marel og 17% hlutur í Stork BV sem á og rekur iðnfyrirtækin Stork Technical Services og Fokker Technologies. Á síðustu árum hefur Eyrir aukið vægi sprotafjárfestinga í eignasafni sínu. Mikilvægt skref var stigið í ágúst 2012 þegar Stork Technical Services og Fokker réðust í sjálfstæðar langtímafjármagnanir. Eyrir leggur STS og Fokker til allt að 23 milljónir evra í formi nýs hlutafjár í tengslum við endurfjármögnun félaganna. Fjárhagur lykileigna Eyris er traustur og í samræmi við stefnu og alþjóðleg viðmið með nettó skuldsetningu 2-4x EBITDA. Árni Oddur Þórðarson, forstjóri: „Við erum ánægð með góða afkomu og trausta fjárhagsstöðu. Ójöfnuður í efnahagsmálum á heimsvísu skapar krefjandi rekstrarskilyrði og fjármálamarkaðir eru almennt veikburða. Rekstrarfélög okkar hafa vaxið með sókn á nýja markaði á undanförnum árum, jafnt með innri vexti og stefnumarkandi yfirtökum. Mikilsverðum áfanga var náð nú í ágúst þegar Stork Technical Services og Fokker Technologies réðust í sjálfstæðar langtímafjármagnanir. Með nýrri fjármögnun skapast aukinn sveigjanleiki í rekstri og unnt er að ljúka að fullu samþættingu RBG inn í rekstur Stork Technical Services. Lykilfélög okkar eru vel staðsett í atvinnugreinum með góðan undirliggjandi vöxt og horft til framtíðar erum við hóflega bjartsýn.“ Rekstrarreikningur (í þús. evra) 2012/6m 2011 2011/6m 2010 -------------------------------------------------------------------------------- Rekstrartekjur: Afkoma af verðbréfum 24.513 -30.977 -15.165 64.851 Arðstekjur 2.489 0 0 0 Tekjur v/br. reikningsskilaaðferðar 0 30.107 0 0 hlutdeildar- félags Afkoma hlutdeildarfélaga 0 11.650 2.583 7.491 Vaxtagjöld, nettó -5.115 -12.920 -5.487 -15.873 Gengismunur -2.727 4.763 5.531 -3.254 ------------------------------------- Hreinar rekstrartekjur 19.160 2.623 -12.538 53.215 Rekstrargjöld: Laun og launatengd gjöld 527 934 451 836 Annar rekstrarkostnaður 303 732 370 560 ------------------------------------- ------------------------------------- Rekstrargjöld 830 1.666 821 1.396 Afkoma tímabilsins 18.330 957 -13.359 51.819 ------------------------------------- Rekstrarliðir færðir beint á eigið fé -368 -488 -190 -18.639 samtals ------------------------------------- Heildarafkoma tímabilsins 17.962 469 -13.549 33.180 ------------------------------------- Hagn. á hlut, evrusent (hver hlutur 1 ISK) 1,75 0,09 -1,33 5,14 ------------------------------------- Heildarhagn á hlut, evrusent (hver hlutur 1,71 0,05 -1,34 3,29 1 ISK) ------------------------------------- Efnahagsreikningur Eignir: 2012/6m 2011 2011/6m 2010 ---------------------------------------- Handbært fé og bundnar bankainnistæður 772 10.474 12.274 22.758 Hlutafjárloforð 0 15.377 0 0 Fjárfestingaverðbréf 373.837 364.931 174.320 256.835 Hlutdeildarfélög 0 0 167.533 143.602 Aðrar kröfur 2.992 2.282 2.764 1.201 Rekstrarfjármunir 2.045 2.082 2.126 2.050 ---------------------------------------- Eignir samtals 379.646 395.146 359.017 426.446 ---------------------------------------- ---------------------------------------- Eigið fé og skuldir: Eigið fé 204.880 202.493 173.098 186.648 Ýmsar skuldir 203 239 226 1.908 Lántaka 174.563 192.414 185.693 237.890 ---------------------------------------- Eigið fé og skuldir samtals 379.646 395.146 359.017 426.446 ---------------------------------------- Eiginfjárhlutfall 54,0% 51,2% 48,2% 43,8% Lykileignir Eyris Lykileignir Eyris eru færðar til bókar á gangvirði (e. fair value) eða á markaðsvirði í samræmi við uppgjörsaðferðir alþjóðlegra fjárfestingarfélaga. Lykileignir nema yfir 90% heildareigna Eyris. Hlutabréf Marel eru skráð á Nasdaq OMX Iceland. Stork er óskráð félag, bókað á gangvirði sem metið er á grundvelli kennitalna á markaði og í viðskiptum með sambærileg félög. Á tímabilinu nam hagnaður Eyris af hlutabréfum í Marel um 45 milljónum evra, en 17% eignarhlutur Eyris í Stork var færður niður um 19 milljónir evra vegna markaðsaðstæðna í Evrópu. Helstu viðburðir á fyrri árshelmingi 18% innri vöxtur hjá Marel Tekjur Marel á fyrri árshelmingi námu 371 milljón evra og jukust um 18% samanborið við sama tímabil árið á undan. EBITDA var 46 milljónir evra en rekstrar EBITDA nam 44 milljónum á fyrri árshelmingi 2011. Hagnaður eftir skatta var 20 milljónir evra samanborið við 9 milljónir á sama tíma árið á undan. Eyrir fékk greiddar 2,5 milljónir evra í arð frá Marel á H1 2011 vegna rekstrarársins 2011. Gengi hlutabréfa Marel var 96 evrusent hinn 30. júní 2012, 21% hærra en í ársbyrjun. Gengi hlutabréfa Marel er nú 98 evrusent. Eyrir hefur verið kjölfestueigandi í Marel frá árinu 2005 og hefur gegnt lykilhlutverki í að móta núverandi vaxtastefnu Marels og stutt stjórnendur félagsins við að hrinda henni í framkvæmd. Á undanförnum árum hefur Marel skilað góðum vexti og styrkt leiðandi stöðu sína á markaði með þeirri stefnu að fjárfesta vel í rannsóknum og þróun sem og markaðssókn. Í dag er gott jafnvægi í sölu hjá Marel og félagið er vel staðsett til þess að njóta góðs af undirliggjandi vexti atvinnugreinarinnar. Stork Technical Services (STS) og Fokker endurfjármögnuð á H2 2012 Í ágúst 2012 réðst Stork í endurfjármögnun rekstrarfélaga sinna, STS og Fokker. Með sjálfstæðri fjármögnun hvors félags um sig eykst sveigjanleiki í daglegum rekstri og aukin tækifæri skapast fyrir félögin til að vaxa á eigin forsendum. Fjármögnunin gerir einnig unnt að ljúka að fullu samþættingu á rekstri RGB inn í STS. Í endurfjármögnuninni felst einnig eiginfjárframlag frá núverandi hluthöfum og mun Eyrir Invest leggja fram allt að 23 milljónir evra. Stork Technical Services; Stork Technical Services er alþjóðlegt fyrirtæki í þjónustu við olíu-, gas- og orkuiðnað. Rekstur STS, að meðtöldum rekstri RBG, er í takt við rekstrarárangur á sama tímabili árið á undan, þó misjafnt eftir deildum. Reksturinn er þyngri á hefðbundnum mörkuðum á meginlandi Evrópu en RBG, með áherslu á Norðursjó og alþjóðlega markaði, sýnir betri rekstrarárangur en árið á undan. Samanlögð velta STS og RBG árið 2011 var liðlega 1,3 milljarður evra með um 95 milljónir evra í EBITDA. Hjá STS starfa um 14.300 starfsmenn á starfsstöðvum félagsins í Evrópu, Afríku, Miðausturlöndum, Asíu og Ameríku. Fokker Technologies; Fokker Technologies hannar og framleiðir íhluti og kerfi fyrir flugiðnaðinn í heiminum og rekur þróunarsetur og verksmiðjur í Hollandi, Tyrklandi, Ameríku og Asíu. Félagið veitir einnig heildstæða þjónustu og framleiðir vörur fyrir eigendur og rekstraraðila flugfara um allan heim. Velta Fokker á árinu 2011 nam um 685 milljónum evra og EBITDA var 74 milljónir. Rekstur Fokker það sem af er ári er í samræmi við áætlanir. Fjármögnun Í mars keypti Eyrir eigin hlutabréf sem nema 9% af heildarútgefnu hlutafé félagins fyrir 16 milljónir evra. Heildarútgefið hlutafé í Eyri Invest er um 1.108 milljónir hlutir, þar af eru 100 milljónir eigin bréf. Stærstu hluthafar eru Þórður Magnússon og Árni Oddur Þórðarson og félög að fullu í þeirra eigu með ríflega 34% hlut í Eyrir Invest. Á fyrri árshelmingi 2012 greiddi Eyrir upp skuldabréfaflokkinn EYRI 05 1, alls að fjárhæð2.540 milljónir ISK (16 milljónir EUR). Á H1 2012 voru skuldabréf Eyris, EYRI 11 1, að nafnvirði 1.012,5 króna (6 milljónir evra) tekin til viðskipta á NASDAQ OMX Iceland en bréfin voru gefin út árið 2011. Í júlí tilkynnti Eyrir um langtímafjármögnun frá innlendum bönkum að andvirði samtals 2.100 milljónir íslenskra króna, með lokagjalddaga 2017. Til viðbótar við ofangreint og áður tilkynnt hefur Eyrir Invest nú í ágúst tryggt sér 8,5 milljóna evru lán hjá innlendum banka. Lánið ber LIBOR + 4,2% vexti. Höfuðstóll og vextir eru á gjalddaga í ágúst 2013. Lánið, sem er tryggt með veðum í óskráðum hlutabréfum, verður nýtt til lausafjárstýringar og stuðnings við núverandi fjárfestingar. Horfur Horft fram á veginn er búist við góðum vexti og virðisaukningu í þeim atvinnugreinum sem kjölfestueignir Eyris Invest starfa í; matvæla-, orku- og flugiðnaði. Á síðastliðnum árum hafa lykilfélög Eyris stöðugt styrkt markaðsstöðu sína og eru vel í stakk búin til að njóta góðs af efnahagsbata á heimsvísu. Afkoma getur verið breytileg frá ári til árs. Um Eyrir Invest Eyrir er alþjóðlegt fjárfestingarfélag sem leggur ríka áherslu á virka þátttöku í rekstri og stefnumörkun lykileigna sinna. Kjölfestueignir Eyris eru 33% hlutur í Marel og 17% hlutur í Stork BV sem á og rekur iðnfyrirtækin Stork Technical Services og Fokker Technologies. Á síðustu árum hefur Eyrir aukið vægi sprotafjárfestinga í eignasafni sínu sem nú verður gert hærra undir höfði í gegnum félagið Eyrir sprotar slhf. „Kaupa og styðja til vaxtar“ stefna Eyris hefur skilað góðri ávöxtun frá stofnun félagsins um mitt ár 2000. Athygli fjárfesta er vakin á eftirfarandi Sumar staðhæfingar í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu hennar. Í eðli sínu fela slíkar staðhæfingar því í sér óvissu. Við vekjum þess vegna athygli fjárfesta á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í þessari tilkynningu. Tilkynningin verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. |
|||
|