2013-12-06 12:45:00 CET

2013-12-06 12:45:01 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða í útboði óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 15 0408


Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 15 0408 fór fram hjá Lánamálum ríkisins
kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. 

                    Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 15 0408:

Alls bárust 6 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 1.350 m.kr. að nafnverði. 2
tilboðum var tekið fyrir 650 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 99,800 (4,64%
ávöxtunarkröfu). 



Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 10.
desember. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er miðvikudagurinn 11. desember 2013.