|
|||
2018-05-24 17:01:19 CEST 2018-05-24 17:01:55 CEST REGULATED INFORMATION FAST-1 slhf. - Boðun hluthafafundarFAST-1 slhf. - Aðalfundur og og upplýsingafundur skuldabréfaeigenda flokksins FAST-1 12 1Aðalfundur FAST-1 slhf. Aðalfundur FAST-1 verður haldinn þann 7. júní 2018 á Hótel Reykjavík Natura, Nauthólsvegi 52, 101 Reykjavík. Salur 4. Fundurinn hefst kl. 14:30. Boðið verður upp á léttar veitingar að fundi loknum. Dagskrá aðalfundarins er eftirfarandi: 1. Skýrsla stjórnar 2. Ársreikningur félagsins lagður fram til samþykktar 3. Ákvörðun um arðgreiðslu 4. Ákvörðun um greiðslu stjórnarlauna 5. Kosning í stjórn félagsins 6. Kosning endurskoðunarfélags fyrir félagið 7. Tillaga stjórnar um reglur um mat á fjárfestingarkostum félagsins 8. Tillaga stjórnar um reglur um sölu eignasafns, ráðstöfun söluandvirðis og starfstíma félagsins 9. Tillaga um starfskjarastefnu, ef við á, sbr. 79. gr. a laga um hlutafélög 10. Tillaga um að hluthafafundur samþykki sölu á eignasafni félagsins til Regins hf. 11. Önnur mál Ársreikningur félagsins er birtur á vefsíðu félagsins: www.fast1.co.is. Hluthafar geta nálgast gögn vegna aðalfundar á skrifstofu félagsins að Katrínartúni 2, 105 Reykjavík, á skrifstofutíma alla virka daga. Fundurinn mun fara fram á íslensku og eru fundargögnin á íslensku. Upplýsingafundur skuldabréfaeigenda: Fundur skuldabréfaeigenda flokksins FAST-1 12 1 verður haldinn strax að loknum aðalfundi FAST-1 slhf. Dagskrá fundarins er eftirfarandi: 1. Kynning á fyrirhuguðu uppgreiðslufyrirkomulagi skuldabréfaflokksins FAST- 1 12 1, vegna sölu á eignasafni FAST-1 til Regins hf. [] |
|||
|