2014-03-07 11:52:12 CET

2014-03-07 11:53:16 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjaneshöfn - Ársreikningur

Reykjaneshöfn – Ársreikningur 2013


Meðfylgjandi er ársreikningur Reykjaneshafnar fyrir árið 2013 og
fréttatilkynning vegna hans, en ársreikningurinn var lagður fram og samþykktur
af hafnarstjórn 07. mars 2014. 



                                                                     Fjárhags-  
                                           2013             2012   áætlun 2013  
Rekstrartekjur                      219.268.626      180.968.292     351.490.000
Rekstrargjöld                       169.211.026      152.579.083     203.578.000
Hagnaður fyrir afskriftir            50.057.600       28.389.209     173.315.000
Rekstrarniðurstaða                    4.022.709     (17.857.620)     131.389.000
Tap ársins                       ( 650.503.476)   ( 667.074.903)   (510.634.000)
Eignir                              31.12. 2013      31.12. 2012     áætlun 2013
Fastafjármunir                    2.825.105.933    2.706.305.146   2.898.648.000
Veltufjármunir                       38.282.223      178.513.242      40.000.000
Eignir                            2.863.388.156    2.884.818.388   2.938.648.000
Eigið fé og skuldir                 31.12. 2013      31.12. 2012     áætlun 2013
Eigið fé                                      (                (               (
                                 4.471.542.081)   3.851.709.467)  4.302.852.000)
Langtímaskuldir og                6.826.486.871    6.341.670.384   6.695.571.000
 skuldbindingar                                                                 
Skammtímaskuldir                    508.443.366      394.857.471     545.929.000
Skuldir                           7.334.930.237    6.736.527.855   7.241.500.000
Eigið fé og skuldir               2.863.388.156    2.884.818.388   2.938.648.000
                                    31.12. 2013      31.12. 2012     áætlun 2013
Handbært fé til rekstrar          (139.345.125)    (202.043.266)    (77.049.000)
Veltufé til rekstrar              (137.829.018)    (286.417.936)   (208.386.000)





Ársreikningur Reykjaneshafnar er gerður í samræmi við sveitarstjórnarlög, lög
um ársreikninga og ársreikninga sveitarfélaga og auglýsingar
fjármálaráðuneytisins um reikningsskil sveitarfélaga. 

Starfsemi Reykjaneshafnar er fjármögnuð með rekstratekjum frá hafnarrekstri og
rekin sem fjárhagslega sjálfstætt fyrirtæki í 100% eigu Reykjanesbæjar. 

Rekstrartekjur hafnarinnar á árinu 2013 námu 219 millj. kr. og rekstrargjöld
kr. 169 m.kr. og þar af laun 76 m.kr. samkvæmt  ársreikningi.  Hagnaður fyrir
afskriftir 50 m.kr.  Afskriftir 46 m.kr. fjármunatekjur og -gjöld  655 mkr. en
tap ársins 651 mkr. 

Framkvæmdir voru óverulegar á árinu 2013, unnið við gatnagerð, lóðir og
fjárfest fyrir 4 m.kr. 



Framtíðarsýn:

Lóðaúthlutun í Helguvík hefur nánast stöðvast frá árinu 2008 og en reiknað með
úthlutun lóða á árinu 2014 m.a. hjá Thorsil ehf. undir kísilverksmiðju. 

Reykjaneshöfn undirritaði 27.4. 2006 hafnarsamning og lóðarsamning í Helguvík
við Norðurál. Fyrirhugað er að reisa allt að 270 þúsund tonna álver í áföngum. 
Fyrsti áfangi yrði 90 þúsund tonna álver og hófust byggingarframkvæmdir við
hann í  maí 2008.  Óvíst er hvenær framleiðsla hefist en vonast að það verði á
árinu 2015. 



Góðar framtíðarhorfur Reykjaneshafnar.

Þrátt fyrir erfiðan rekstur Reykjaneshafnar árið 2013 og skuldir sem nema um
7,3 milljörðum króna, mun eignastaða Reykjaneshafnar styrkjast á næstu árum. 
Það byggir á því að virði lóðargjalda á óúthlutuðum lóðum í Helguvík, samkvæmt
gjaldskrá, er um 4,5 milljarðar kr. 

Eftir endurfjármögnun langtímalánanna á árinu 2011, þá er áætlað að rekstur
hafnarinnar muni komast í jafnvægi á næstu árum með auknum tekjum vegna
hafnargjalda, lóðargjalda, lóðarleigu og fasteignarskatta tekjurnar verði hærri
en fjármagnskostnaðurinn og höfnin nái að greiða niður skuldir sínar.  Í þeim
áætlunum sem unnið er með gagnvart lánveitendum er gert fyrir að
byggingarframkvæmdir við kísilver fari af stað sumarið 2014 og rekstur hefjist
í byrjun ársins 2016. 

Reykjaneshöfn væntir einnig tekna af starfsemi Brúarfoss hf. sem hyggst hefja
framkvæmdir við starfsemi vatnsverksmiðju að Stakkbraut 6 sumarið 2014. 



Stjórn og framkvæmdastjóri væntir þess, að nýtt hafnalagafrumvarp
ríkisstjórnarinnar stuðli að aðkomu ríkisins að hafnarframkvæmdum og
uppbyggingu innviða vegna atvinnustarfsemi í Helguvík. 

Jafnframt er Helguvík komin inn á stefnumótandi byggðaáætlun  fyrir árin 2014 -
2017 í tillögu að þingsályktun, sem lögð var fyrir Alþingi 20. desember 2013.