|
|||
2013-06-04 17:54:26 CEST 2013-06-04 17:55:27 CEST REGULATED INFORMATION Reginn hf. - FyrirtækjafréttirLýsing - Skuldabréfaflokkur REG2SM 12 1Það tilkynnist hér með að í dag verður birt á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins, www.fme.is, lýsing REG 2 Smáralind, fagfjárfestasjóðs sem er lánveitandi Eignarhaldsfélags Smáralindar ehf. Eignarhaldsfélagið Smáralind ehf. er eigandi að fasteigninni Hagasmári 1, betur þekkt sem Smáralind og er félagið dótturfélag Regins hf. Í lýsingunni má meðal annars finna verðmat á Hagasmára 1 (Smáralind) sem framkvæmt var af PricewaterhouseCoopers ehf., fyrir REG 2 Smáralind fagfjárfestasjóð. Samkvæmt virðismati var virði fasteignarinnar metið á bilinu 13,4 - 14,4 milljarðar kr., byggt á sjóðstreymismati núverandi leigusamninga. Í viðauka við lýsinguna má finna virðismatið í heild sinni. REG 2 Smáralind fagfjárfestasjóður er í umsýslu Stefnis hf. Nánari upplýsingar veitir: Helgi S. Gunnarsson Forstjóri Regins hf. S: 5128900 / 8996262 |
|||
|