|
|||
2024-05-07 19:04:58 CEST 2024-05-07 19:05:22 CEST REGULATED INFORMATION Sýn hf. - Árshlutareikningur (Q1 og Q3)Sýn hf.: Afkoma fyrsta ársfjórðungs 2024Helstu atriði varðandi afkomu og samanburður milli ára Árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. fyrir fyrsta ársfjórðung ársins 2024 var samþykktur á stjórnarfundi þann 7. maí 2024.
„Stjórn og lykilstjórnendur Sýnar eru sammála um að arðsemi fyrirtækisins hafi ekki verið ásættanleg undanfarin ár. Við erum jafnframt samstíga um að hefja stefnumótunar vegferð félagsins undir merkjum skilvirkni, vaxtar og samvinnu, sem leitast við að gefa viðskiptavinum, starfsmönnum og fjárfestum, skýra mynd af markmiðum og áherslum fyrirtækisins. Gildi félagsins eru Gleði - Ástríða – Metnaður sem verður drifkraftur fyrirhugaðrar vegferðar. Frá því ég hóf störf hjá Sýn hefur samstarfsfólk mitt sýnt mikla áræðni, drifkraft og metnað til að efla rekstur samstæðunnar enn frekar. Þeirri vegferð verður haldið áfram með skýrri stefnu og framsetningu á lykiláherslum og þannig getum við fært markaðsaðilum reglulega fréttir af framgangi verkefna. Samtakamáttur og skýr stefna er lykilþáttur í árangri. Það má segja að vegferðin fari vel af stað. Skipulagsbreytingar sem nú þegar hefur verið gripið til á þessu ári, munu skila um 32 m.kr. sparnaði á mánuði, eða um 380 m.kr. á ársgrundvelli þegar áhrif þeirra verða að fullu komin fram. Á fyrsta ársfjórðungi, var ég einstaklega ánægð með sterkan tekjuvöxt í auglýsingatekjum og einnig er ánægjulegt að sjá góðan viðsnúning í heimatengingum. Reikitekjur halda til viðbótar áfram að vaxa. Farsímatekjur lækka hins vegar frá sama tímabili í fyrra, líkt og greint var frá í nýlegri tilkynningu. Rekstrarafkoma félagsins er ekki ásættanleg en hins vegar er gert ráð fyrir umtalsverðum rekstrarbata á síðari hluta ársins og á því næsta, eftir því sem skipulagsbreytingar ná fram að ganga,“ segir Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar. Viðhengi |
|||
|