|
|||
![]() |
|||
2014-10-08 18:51:35 CEST 2014-10-08 18:52:01 CEST REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirIslandsbanki hf. : Íslandsbanki lýkur víxlaútboðiÍslandsbanki hf. lauk í dag útboði á tveimur víxlum til 5 og 6 mánaða. Hvor flokkur getur að hámarki orðið 1,5 ma. kr. að nafnvirði. Útboðinu var þannig háttað að boðið var í magn á fyrirfram ákveðnu verði. 5 mánaða víxillinn á 5,80% flötum vöxtum (verð: 97,5483) og 6 mánaða víxillinn á 5,85% flötum vöxtum (verð: 97,1275). Tilboðum var tekið í 5 mánaða víxilinn að fjárhæð 760 milljónir króna að nafnvirði og að fjárhæð 1.120 milljónir króna í 6 mánaða víxilinn. Fyrir útboðið voru útistandandi víxlar Íslandsbanka að fjárhæð 4,62 ma. kr. Bréfin voru seld til breiðs hóps fjárfesta. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 15. október næstkomandi. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Guðbjörg Birna Björnsdóttir, gudbjorg.bjornsdottir@islandsbanki.is og í síma 440 4752/ 844 4752. * Upplýsingafulltrúi - Guðný Helga Herbertsdóttir, gudny.helga.herbertsdottir@islandsbanki.is og í síma 844 3678. [HUG#1861667] |
|||
|