2015-10-07 19:09:43 CEST

2015-10-07 19:10:24 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íslandsbanki hf. - Fyrirtækjafréttir

Islandsbanki hf. : Íslandsbanki lýkur víxlaútboði


Íslandsbanki  hf. lauk  í dag  útboði á  víxlum til  5 og 6 mánaða. Tilboðum var
tekið  fyrir 4,72 ma. kr. Seldir voru víxlar í  flokki ISLA 16 0321 að nafnvirði
1,0 ma.  kr. á  6,34% flötum vöxtum  (verð 97,2928) og  í flokki ISLA 16 0415 að
nafnvirði  3,72 ma.  kr.  á  6,50% flötum  vöxtum  (verð  96,8015). Flokkur ISLA
16 0321 getur að hámarki orðið 1,5 ma. kr. að nafnvirði en flokkur ISLA 16 0415
getur orðið 5 ma. kr. að stærð.

Fyrir  útboðið  voru  útistandandi  víxlar  Íslandsbanka  að fjárhæð 3,4 ma. kr.
Heildareftirspurn  í útboðinu  var 6,98 ma.  kr. Stefnt  er að töku víxlanna til
viðskipta  í Nasdaq Iceland  þann 15. október næstkomandi,  með auðkennunum ISLA
16 0321 og ISLA 16 0415.

Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengill - Guðbjörg Birna Björnsdóttir, ir@islandsbanki.is og í síma
    440 4752/ 844 4752.
  * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma
    440 4005.


[HUG#1957517]