|
|||
2009-03-23 18:04:33 CET 2009-03-23 18:05:33 CET REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - FyrirtækjafréttirÍbúðalánasjóður kaupir skuldabréf tryggð með veði í íbúðarhúsnæði af Sparisjóðnum í KeflavíkNáðst hafa samningar milli Sparisjóðsins í Keflavík (SpKef) og Íbúðalánasjóðs (ÍLS) um að SpKef selji ÍLS safn skuldabréfa, að fjárhæð um 10 milljarðar króna, tryggt með veði í íbúðarhúsnæði í samræmi við heimild til slíkra kaupa skv. lögum nr. 125/2008, reglugerð nr. 1081/2008 og reglur Íbúðalánasjóðs um kaup á skuldabréfum fjármálafyrirtækja. ÍLS mun greiða 80% af uppreiknuðu virði safnsins með afhendingu íbúðabréfa sem hér segir: • Úr flokki HFF150434, bréf að nafnvirði kr. 1.033.936.941 • Úr flokki HFF150644, bréf að nafnvirði kr. 4.846.955.385 Eftirstöðvarnar, eða 20%, er krafa SpKef á ÍLS sem kemur til með að verða gerð upp að 8 árum liðnum. Til ársins 2010 er SpKef óheimilt að lána eða selja ofangreind íbúðabréf á eftirmarkaði og einungis heimilt að nota íbúðabréfin í veðlánaviðskiptum við Seðlabanka Íslands. Á árinu 2009 áskilur ÍLS sér rétt til að skipta ofangreindum íbúðabréfum út fyrir íbúðabréf úr nýjum flokki íbúðabréfa sem stofnaður verður á árinu, þannig að uppreiknuð staða bréfanna við skiptin jafngildi markaðsvirði bréfanna úr flokkum HFF150434 og HFF150644 á skiptadegi. Kjósi SpKef að selja íbúðabréfin skuldbindur hann sig til að skipta sölu bréfanna niður á 3 ár þannig að hámarksfjárhæð bréfa sem heimilt er að selja á hverju ári, fyrst á árinu 2010, sé 1/3 af nafnverðsfjárhæð afhentra bréfa. Afhending íbúðabréfanna skv. samningi þessum fer fram á næstu tveimur vikum í samræmi við afgreiðslu SpKef á hinum seldu skuldabréfum til ÍLS. |
|||
|