2014-04-25 16:45:40 CEST

2014-04-25 16:46:40 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Mosfellsbær - Fyrirtækjafréttir

Mosfellsbær stækkar skuldabréfaflokk


Mosfellsbær hefur stækkað skuldabréfaflokkinn MOS 13 1 um 100 milljónir að
nafnverði. Skuldabréfin voru seld í lokuðu útboði á ávöxtunarkröfunni 3,15%.
Heildarstærð flokksins eftir stækkun er kr. 1.100.000.000 að nafnverði. 

Gert er ráð fyrir að nýju skuldabréfin verði tekin til viðskipta á aðalmarkaði
NASDAQ OMX Iceland hf. þriðjudaginn 29. apríl nk. 

H.F. Verðbréf hf. hafði umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna og töku þeirra
til viðskipta. 



Nánari upplýsingar veitir:

Haraldur Sverrisson,
bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Sími: 525-6700