|
|||
2013-10-15 18:55:34 CEST 2013-10-15 18:56:35 CEST REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - FyrirtækjafréttirMánaðarskýrsla Íbúðalánasjóðs september 201354 íbúðir í Vindakór seldar Íbúðalánasjóður seldi í september 54 íbúða fjölbýlishús við Vindakór í Kópavogi. Húsið er samtals um 10.500 fermetrar með bílageymslu. Húseignin í Vindakór er á meðal þeirra eigna sem sjóðurinn leysti til sín árið 2009, en mikið verk fólst í að meta ástand og ágalla eignarinnar. Eiginlegt söluferli fór af stað síðla árs 2012, en áður hafði sjóðurinn reynt að selja eignina í árslok 2009. Alls hefur Íbúðalánasjóður selt 218 eignir á fyrstu 9 mánuðum ársins samanborið við 98 á sama tímabili í fyrra. Áhersla hefur verið lögð á sölu stærri eininga og skýrist magnaukning í sölu m.a. af sölu nokkurra fjölbýlishúsa. |
|||
|