|
|||
2014-03-14 16:18:16 CET 2014-03-14 16:19:18 CET REGULATED INFORMATION Hampiðjan hf. - Notice to convene ext. general meeting (is)Aðalfundur Hampiðjunnar verður haldinn föstudaginn 28. mars 2014 og hefst kl. 16:00Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verður haldinn að Skarfagörðum 4, Reykjavík, föstudaginn 28. mars 2014 og hefst kl. 16:00. Á dagskrá fundarins verða: 1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins. 2. Tillaga um heimild félagsstjórnar til kaupa á eigin hlutum skv. 55. gr. hlutafélagalaga. 3. Önnur mál, löglega upp borin. Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, tveimur vikum fyrir aðalfund. Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað. Framboðsfrestur vegna stjórnarkjörs rennur út fimm virkum dögum fyrir upphaf aðalfundar. Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu hafa borist í hendur stjórnar með skriflegum hætti eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund. Hluthafar sem ekki geta sótt fundinn, en hyggjast gefa umboð, þurfa að gera það skriflega. |
|||
|