2011-12-29 11:36:05 CET

2011-12-29 11:37:06 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjavíkurborg - Fyrirtækjafréttir

Útgáfuáætlun Reykjavíkurborgar fyrstu sex mánuði ársins 2012


Í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2012 kemur fram að
Reykjavíkurborg áætlar lántökur að fjárhæð 6.230 mkr vegna framkvæmda. 

Stærð skuldabréfaflokksins RVK 09 1 er 14.515 mkr að nafnverði 28 desember 2011.

Borgarráð samþykkti á fundi sínum þann 22 desember sl. útgáfuáætlun vegna
stækkunar skuldabréfaflokksins RVK 09 1 á tímabilinu janúar-júní 2012. Útboð
munu því fara fram í eftirfarandi vikum. Einnig er tilgreind fyrirhuguð lántaka
í einstökum útboðum enda áskilin réttur til að hafna öllum tilboðum eða jafnvel
taka hærri fjárhæðum sé þess þörf og ásættanleg kjör í boði. 

mars:   vika 12  (21.3.2012), 500 mkr í boði
apríl:    vika 17  (25.4.2012),  500 mkr í boði
maí:     vika 21  (23.5.2012), 500 mkr í boði


Tilkynnt verður um fyrirkomulag einstakra útboða í fréttakerfi NASDAQ OMX á
Íslandi a.m.k 1 virkum degi fyrir útboð. 

Reykjavíkurborg áskilur sér allan rétt til að víkja frá áætlun þessari og mun
þá tilkynna um breytingar þar að lútandi í fréttakerfi NASDAQ OMX á Íslandi 



Nánari upplýsingar gefur:

Birgir Björn Sigurjónsson

Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar

Sími: 411-1111