|
|||
2009-04-27 18:29:27 CEST 2009-04-27 18:30:30 CEST REGULATED INFORMATION Sparisjóður Mýrasýslu - Fyrirtækjafréttir- SPM fer í greiðslustöðvunEins og greint var frá í fréttatilkynningu sem birtist í Nasdaq OMX Iceland þann 6. apríl síðastliðinn hugðist stjórn SPM sækja um greiðslustöðvun fyrir sparisjóðinn og ganga til nauðasamninga á grundvelli samkomulags við helstu lánardrottna sjóðsins. Umsókn um greiðslustöðvun var lögð fram hjá Héraðsdómi Vesturlands og hefur verið samþykkt. Greiðslustöðvunin gildir í þrjár vikur. Umsjónarmaður í greiðslustöðvun er Sigurður Arnalds hæstarréttarlögmaður. Lánardrottnum verða kynnt drög að nauðasamning fyrir SPM á næstu dögum. Ef nauðasamningar nást er stefnt að sameiningu SPM og Nýja Kaupþings banka hf. |
|||
|