2010-03-19 15:43:13 CET

2010-03-19 15:44:13 CET


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų Anglų
Eignarhaldsfélagið Farice ehf. - Fyrirtækjafréttir

Fjárhagsleg endurskipulagning Eignarhaldsfélagsins Farice ehf. og dótturfélagsins Farice hf.


Samkomulag það sem Eignarhaldsfélagið Farice ehf. og kröfuhafar þess gerðu í
desember 2009 hefur verið framlengt til 1. apríl n.k. Samkomulagið felur sem
fyrr í sér að félagið fær frest út samningstímann til að greiða eða semja um
gjaldfallnar afborganir. Eignarhaldsfélagið Farice ehf. hefur að undanförnu
unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu á félaginu í samstarfi við kröfuhafa
og aðra hagsmunahafa félagsins með aðstoð ráðgjafa.  Farice hf., dótturfélag
Eignarhaldsfélagsins Farice ehf hefur einnig gerst aðili að samkomulagi við
helstu kröfuhafa sína um frest til 1. apríl n.k. til að greiða eða semja um
gjaldfallnar afborganir.