2013-08-22 18:23:57 CEST

2013-08-22 18:24:58 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
HB Grandi hf. - Interim information (is)

Afkoma HB Granda á fyrri árshelmingi 2013




  -- Rekstrartekjur samstæðunnar á fyrri árshelmingi ársins 2013 voru 99,3 m€,
     en voru 93,3 m€ árið áður.
  -- EBITDA var 24,1 m€ (24,3%), en var 28,7 m€ (30,8%) árið áður.
  -- Hagnaður tímabilsins var 16,2 m€. Árið áður nam tap tímabilsins 1,5 m€.

Rekstur fyrstu sex mánaða ársins 2013

Rekstrartekjur HB Granda hf. á fyrri helmingi ársins 2013 námu 99,3 m€,
samanborið við 93,3 m€ árið áður. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA)
var 24,1 m€ eða 24,3% af rekstrartekjum, en var 28,7 m€ eða 30,8% árið áður.
Lækkun rekstrarhagnaðar má rekja til hækkunar á veiðigjöldum en þau námu 7,2 m€
samanborið við 1,9 m€ fyrri helming ársins 2012. Áhrif fjáreignatekna og
fjármagnsgjalda voru jákvæð um 2,9 m€, en voru neikvæð um 2,0 m€ á sama tíma
árið áður. Áhrif hlutdeildarfélaga voru neikvæð um 1,5 m€. Hagnaður fyrir
tekjuskatt var 19,8 m€ og hagnaður tímabilsins var 16,2 m€. Tekjuskattur að
fjárhæð 3,6 m€ er reiknaður samkvæmt framtali í íslenskum krónum. 

Laun og launatengd gjöld námu samtals 32,8 m€ (5,3 milljarðar króna), en 29,0
m€ (4,7 milljarðar króna) á sama tíma árið áður. 

Efnahagur

Heildareignir félagsins námu 303,5 m€ í lok júní 2013. Þar af voru
fastafjármunir 242,0 m€ og veltufjármunir 61,5 m€. Eigið fé nam 173,8 m€ og var
eiginfjárhlutfall 57,3%, en var 55,6% í lok árs 2012. Heildarskuldir félagsins
voru í júnílok 129,7 m€. 

Sjóðstreymi

Handbært fé frá rekstri nam 20,6 m€ á fyrri helmingi ársins 2013, en 23,3 m€ á
sama tíma fyrra árs. Nettó fjárfesting í rekstrarfjármunum nam 9,4 m€.
Fjármögnunarhreyfingar námu 15,8 m€ og voru nettó afborganir langtímalána þar
af 7,0 m€. Handbært fé lækkaði því um 4,6 m€ og var í lok júní 4,0 m€. 

Meginniðurstöður færðar til íslenskra króna

Séu niðurstöður rekstrarreiknings reiknaðar til íslenskra króna á meðalgengi
fyrri helmings ársins 2013 (1 evra = 162,5 kr) verða tekjur 16,1 milljarðar
króna, EBITDA 3,9 milljarður og hagnaður 2,6 milljarðar. Séu niðurstöður
efnahagsreiknings reiknaðar til íslenskra króna á gengi 30. júní 2012 (1 evra =
160,7 kr) verða eignir samtals 48,7 milljarðar króna, skuldir 20,8 milljarðar
og eigið fé 27,9 milljarðar. 

Skipastóll og afli

Breytingar sem kynntar vour á skipastól félagsins í febrúar s.l. hafa gengið
eftir. Venus kom úr sinni síðustu veiðiferð þann 3. júlí s.l. og frystitogarinn
Helga María sigldi til Póllands í breytingar í júní. Áætlað er að Helga María
haldi til veiða sem ísfisktogari um miðjan nóvember n.k. 

Á fyrri helmingi ársins 2013 var afli skipa félagsins 29 þúsund tonn af
botnfiski og 102 þúsund tonn af uppsjávarfiski. 


Sjá lykiltölur, árshlutareikning og fréttatilkynningu í viðhengjum.