2008-10-08 14:26:08 CEST

2008-10-08 14:26:53 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf. - Fyrirtækjafréttir

Útibú Straums í Kaupmannahöfn gerist aðili að nýjum tryggingasjóði innistæðna



Útibú Straums-Burðaráss fjárfestingabanka hf. í Kaupmannahöfn hefur í
dag gerst aðili að danska innistæðutryggingasjóðnum "Det Private
Beredskap".

Det Private Beredskab er sjóður sem hefur meðal annars þann tilgang
að veita tímabundna innistæðutryggingu sem dönsk stjórnvöld tilkynntu
um þann 6. október 2008 í því skyni að verja innistæðueigendur og
almenna kröfuhafa. Tryggingin gildir í tvö ár og felur í sér að
innistæður og almennar kröfur hjá bönkum sem eru aðilar að sjóðnum
eru tryggðar verði þeir gjaldþrota. Tryggingin bætir það sem upp á
vantar eftir að greitt hefur verið það sem kann að vera bætt af hinum
danska Tryggingasjóði innistæðueigenda og fjárfesta
(Indskydergarantifonden) og hliðstæðum tryggingum.

Nánari upplýsingar veitir:
Ólafur Teitur Guðnason, fjölmiðlafulltrúi
Sími: 858 6778
Netfang: olafur.gudnason@straumur.net