|
|||
2015-10-12 19:16:53 CEST 2015-10-12 19:17:53 CEST REGULATED INFORMATION Reitir fasteignafélag hf. - Breytingar á eigin hlutum félagsREITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlunÍ 41. viku 2015 keypti Reitir fasteignafélag hf. 119.596 eigin hluti fyrir 9.005.579 kr. eins og hér segir: Dagsetnin Tími Keyptir Viðskipta-ve Kaupverð Eigin hlutir eftir g hlutir rð viðskipti -------------------------------------------------------------------------------- 9.10.2015 15:11 119.596 75,3 9.005.579 4.463.287 -------------------------------------------------------------------------------- Samtals 119.596 9.005.579 -------------------------------------------------------------------------------- Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 19. júní 2015, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 18. júní 2015. Reitir hafa nú keypt samtals 4.463.287 hluti í félaginu sem samsvarar 13,13% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 313.304.925 krónum. Reitir eiga nú samtals 0,59% af heildarhlutafé félagsins. Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 34.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 2.300 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016 en þó aldrei síðar en þann 29. febrúar 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005. |
|||
|