2011-05-10 18:26:48 CEST

2011-05-10 18:27:49 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kópavogsbær - Ársreikningur

Ársreikningur Kópavogsbæjar fyrir árið 2010


Afkoman betri en áætlanir gerðu ráð fyrir

Rekstrarafkoma Kópavogsbæjar á árinu 2010 var betri en ráð var gert fyrir í
fjárhagsáætlun ársins. Hún var jákvæð um 1.032 milljónir króna en árið á undan
var hún neikvæð upp á 4.068 milljónir króna. Rekstrarniðurstaða bæjarins varð
988 milljónum krónum betri en áætlunin. 

Þetta er meðal þess sem fram kemur í ársreikningi bæjarins fyrir árið 2010.
Hann fer til fyrri umræðu í bæjarstjórn Kópavogs í dag. 

Með áframhaldandi hagræðingu og útsjónarsemi tókst að halda uppi þjónustustigi
í bænum á árinu. Tekjur bæjarfélagsins urðu heldur hærri en áætlað var en íbúum
fjölgaði um 383 milli ára, eða í 30.697 í árslok 2010. 

Aðrir þættir sem hafa áhrif á jákvæða rekstrarútkomu eru gengishagnaður
erlendra langtímalána sem ekki var gert ráð fyrir í fjárhagsáætlun og lækkun
lífeyrisskuldbindinga en áætlun gerði ráð fyrir hækkun skuldbindingarinnar. 

Útgjaldaliðir vegna félags-, fræðslu- og atvinnumála urðu hins vegar nokkuð
hærri en áætlað hafði verið, en það skýrist helst af því efnahagsástandi sem
ríkti á árinu. Má þar nefna að auknu fé var ráðstafað til atvinnuskapandi
verkefna, einkum til sumarvinnu ungmenna. 

Eigið fé bæjarfélagsins í árslok 2010 nam rúmlega 14 milljörðum króna en var
10,4 milljarðar árið á undan. Eiginfjárhlutfallið fór upp í 24%. 

Nánari upplýsingar veitir: Arna Schram, forstöðumaður almannatengsla
Kópavogsbæjar, í síma: 696 0663.