2015-07-24 14:57:29 CEST

2015-07-24 14:58:29 CEST


Islandic English
Icelandair Group hf. - Fjárhagsdagatal

Breytt tímasetning á birtingu uppgjörs 2. ársfjórðungs 2015


Icelandair Group mun birta uppgjör sitt fyrir annan ársfjórðung ársins 2015
fyrr en áður hefur verið tilkynnt um, eða á mánudaginn 27. júlí 2015. Opinn
kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn þriðjudaginn 28.
júlí 2015 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura. Kynningin hefst kl. 16:30 og
verður í Þingsal 3. 

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, og Bogi Nils Bogason,
framkvæmdastjóri fjármála, munu kynna afkomuna og svara spurningum ásamt öðrum
stjórnendum. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum
loknum á heimasíðu Icelandair Group: www.icelandairgroup.is og í fréttakerfi
Nasdaq OMX Iceland hf. 

Hægt verður að fylgjast með fundinum beint á vefslóðinni:
http://www.icelandairgroup.is/investors/reports-and-presentations/webcast-2015/