|
|||
![]() |
|||
2015-10-19 17:44:24 CEST 2015-10-19 17:45:24 CEST REGULATED INFORMATION Tryggingamiðstöðin hf. - Breytingar á eigin hlutum félagsReglubundin tilkynning um kaup TM á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun.Í 42. viku 2015 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 1.278.606 eigin hluti fyrir 28,0 m.kr. eins og hér segir: Dagsetning Tími Keyptir Viðskiptave Kaupverð Hlutir í eigu TM eftir hlutir rð viðskipti -------------------------------------------------------------------------------- 15.10.2015 14:54 639.303 21,95 14.032.7 9.019.622 01 -------------------------------------------------------------------------------- 16.10.2015 11:06 639.303 21,85 13.968.7 9.658.925 71 -------------------------------------------------------------------------------- Samtals 1.278.606 28.001.4 71 -------------------------------------------------------------------------------- Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 2. september 2015, sbr. og tilkynningu til Kauphallar þann dag. TM hefur nú keypt samtals 9.658.925 hluti í félaginu sem samsvarar 31,2% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 201,2 milljónum króna. TM á nú samtals 1,3% af heildarhlutafé félagsins. Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 31.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 600 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016 en þó aldrei síðar en 31. mars 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik. Nánari upplýsingar veitir Sigurður Viðarsson, forstjóri s: 515-2609 sigurdur@tm.is |
|||
|