2016-08-01 14:47:45 CEST

2016-08-01 14:47:45 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup Sjóvá á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 30 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 1.833.459 eigin hluti að
kaupverði 20.918.093 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: 



Dagsetning   Tími  Keyptir hlutir  Viðskiptaverð (gengi)  Kaupverð (kr.)
------------------------------------------------------------------------
------------------------------------------------------------------------
25.07.2016  11:00         565.217  11,50                       6.499.996
27.07.2016  11:43          38.132                  11,53         439.662
------------------------------------------------------------------------
27.07.2016  15:16          19.066                  11,59         220.975
------------------------------------------------------------------------
28.07.2016  09:32         605.522                  11,46       6.939.282
------------------------------------------------------------------------
29.07.2016  09:35         605.522                  11,26       6.818.178
------------------------------------------------------------------------
   Samtals              1.833.459                             20.918.093
------------------------------------------------------------------------



Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun
félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 9. júní 2016. 

Sjóvá átti 14.209.757 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum
16.043.216 eigin hluti eða sem nemur 1,03% af útgefnum hlutum í félaginu. 

Sjóvá hefur keypt samtals 6.127.443 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem
nemur 0,39% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra
70.805.255 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 25.000.000
hluta eða sem nemur 1,6% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó ekki meira en
300.000.000 kr. að kaupverði. Endurkaupaáætlunin er í gildi til 30. september
2016 nema ef kaupum samkvæmt henni verður lokið áður. 

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um
hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og
markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í
endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“ 



Nánari upplýsingar veitir:

Hermann Björnsson, forstjóri s. 440-2000