2016-05-25 19:15:11 CEST

2016-05-25 19:15:11 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - Fyrirtækjafréttir

Lánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða úr skuldabréfaútboði


Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokki LSS150434 og
LSS151155 þann 25. maí 2016. Uppgjör viðskipta fer fram föstudaginn 27. maí
2016. 

Alls bárust tilboð í LSS150434 að nafnvirði ISK 2.200.000.000 á bilinu 3,29% -
3,45%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 350.000.000 á
ávöxtunarkröfunni 3,30%. Útistandandi fyrir voru ISK 21.039.352.565.
Heildarstærð flokksins er nú ISK 21.389.352.565. 

Alls bárust tilboð í LSS151155 að nafnvirði ISK 1.100.000.000 á bilinu 3,19% -
3,37%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 50.000.000 á
ávöxtunarkröfunni 3,19%. Útistandandi fyrir voru ISK 1.067.000.000.
Heildarstærð flokksins er nú ISK 1.117.000.000. 



Nánari upplýsingar veitir:
Örvar Þór Ólafsson
Sími: 515 4947
e-mail: orvar@lanasjodur.is