2009-09-03 11:41:49 CEST

2009-09-03 11:44:01 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Össur hf. - Fyrirtækjafréttir

Skráning Össurar í kauphöll NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn samþykkt



Umsókn Össurar  hf.  um  skráningu hlutabréfa  félagsins  í  kauphöll
NASDAQ OMX í  Kaupmannahöfn hefur verið  samþykkt. Hlutabréf  Össurar
verða opinberlega  skráð og  tekin til  viðskipta 4.  september  2009
(auðkenni OSSR, ISIN IS0000000040). Hlutabréf Össurar munu áfram vera
skráð í kauphöll NASDAQ OMX á Íslandi.

Útgefið hlutafé Össurar  er 423.000.000 kr.  og skiptist í  jafnmarga
hluti að  nafnvirði  ein  króna  hver. Allir  hlutirnir  eru  í  sama
hlutaflokki og þeim fylgja sömu réttindi.

Nordea Bank Danmark A/S er umsjónaraðili með bréfum Össurar sem verða
skráð hjá VP Securities  A/S í Danmörku.  Össur hefur jafnframt  gert
samning um viðskiptavakt við Nordea Markets (deild innan Nordea  Bank
Danmark A/S).

Í tengslum við skráninguna  hefur Össur gefið  út ágrip, samþykkt  af
danska fjármálaeftirlitinu, þar sem er að finna helstu upplýsingar um
félagið og  þá  áhættu sem  tengist  starfsemi þess  og  hlutabréfum.
Hjálagt má finna  enska útgáfu  af ágripinu.  Frekari upplýsingar  um
Össur, þ.m.t. ágripið, kynningarbækling um félagið og starfsemi þess,
auk upplýsinga um heimildir til að eiga viðskipti með hlutabréfin sem
og möguleika á að flytja þau milli Íslands og Danmerkur er að finna á
heimasíðu félagsins: www.ossur.is/investors.


Nánari upplýsingar veita:
Jón Sigurðsson, forstjóri, sími 515 1300
Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri, sími 515 1300
Sigurborg Arnarsdóttir, fjárfestatengill, sími 664 1044