|
|||
2010-02-24 16:04:34 CET 2010-02-24 16:05:39 CET REGULATED INFORMATION Félagsbústaðir hf. - ÁrsreikningurÁrsuppgjör Félagsbústaða hf. fyrir árið 2009Félagsbústaðir, sem eru hlutafélag í eigu Reykjavíkurborgar, eiga og reka félagslegt leiguhúsnæði sem úthlutað er af Velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Markmið félagsins er að starfa í þágu almannaheilla og skal rekstur þess vera sjálfbær Rekstur og afkoma Rekstrartekjur Félagsbústaða h.f. á árinu 2009 námu 2.453 millj.kr., sem er 23% aukning tekna frá árinu á undan. Hækkunin skýrist annars vegar af verðlagshækkun leigu og fleiri íbúðum í útleigu og hins vegar af 200 millj.kr. sértekjum vegna samstarfsverkefnis Reykjavíkurborgar og ríkisins vegna búsetuúrræða fyrir geðfatlaða í húsnæði á vegum Félagsbústaða. Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnskostnað og matsbreytingu fjárfestingaeigna jókst um 36% og nam 1.118 millj.kr. en var 824 millj.kr árið á undan. Tap á rekstri félagsins á árinu 2009 nam hins vegar 3.154 millj.kr. miðað við 3.688 millj.kr. tap árið á undan. Rekstrartöp áranna 2008 og 2009 skýrast annars vegar af verðlagshækkun langtímalána og gengistapi og hins vegar af lækkun á gangvirði fjárfestingaeigna í útleigu Efnahagur Breytingar hafa átt sér stað á skráningu og mati fasteigna á vegum Fasteignaskrár ríkisins sem miða að því að fasteignamatið endurspegli betur gangvirði eigna en áður. Þar sem fasteignamatið sem tekur gildi í árslok miðast nú við verðlag í febrúar ár hvert er fasteignamati fjárfestingaeigna Félagsbústaða lækkað sem nemur lækkun vísitölu íbúðaverðs á tímabilinu frá febrúar til ársloka 2009. Heildareignir félagsins í árslok 2009 námu 32,6 ma.kr. í árslok 2009 eftir 1,6 ma.kr. niðurfærslu vegna verðþróunar fasteigna á árinu. Eigið fé félagsins nam 7,6 ma.kr. í árslok og lækkaði um 3,1 ma. kr. frá árinu á undan. Eiginfjárhlutfall er 23% en var 32% í árlok 2008. Rekstur félagsins skilaði 383 millj.kr. veltufé á árinu 2009 og 348 millj.kr handbæru fé. Kaup og sala íbúða Á árinu 2009 voru keyptar 7 íbúðir á almennum markaði þ.a. 6 þjónustuíbúðir fyrir aldraða að Lindargötu 57 auk þess sem lokið var við byggingu 6 íbúða við þjónustuíbúðakjarna fyrir aldraða að Furugerði 1 og 6 íbúða sambýlis að Kleppsvegi 90. Á árinu voru seldar 3 íbúðir og nam fjölgun íbúða því 16 á árinu 2009 en fjölgaði um 83 íbúðir á árinu 2008. Félagsbústaðir áttu 2158 íbúðir í árlok 2009 þar af 1848 almennar leiguíbúðir og 310 þjónustuíbúðir fyrir aldraða ásamt tilheyrandi þjónusturýmum. Íbúðaeign félagsins í árslok 2009 nam sem svarar 18 íbúðum á hverja 1000 íbúa í Reykjavík, eða 4,6% af öllu íbúðarhúsnæði í borginni Horfur Miklar breytingar hafa átt sér stað á leigumarkaði íbúðarhúsnæðis í borginni. Framboð íbúða á almennum leigumarkaði hefur aukist og leitt til lækkunar á leiguverði og dregið úr eftirspurn eftir félagslegu leiguhúsnæði í borginni. Þá hafa þeir sem treysta sér til þess að leigja á almennum markaði flutt úr húsnæði Félagsbústaða sumpart þar sem dregið hefur saman með leiguverði Félagsbústaða og almenna markaðarins aðallega á stærri íbúðum og sumpart vegna meira úrvals um staðsetningu sem hentar betur aðstæðum leigjandans. Að öllum líkindum mun þetta aukna framboð ganga að einhverju leiti til baka með vonandi bættum efnahag á næstu árum en til lengri tíma gæti hér verið tækifæri til þess að skapa aðstæður til þess að efla almennan leigumarkað á höfuðborgarsvæðinu og um leið auka svigrúm fyrir Félagsbústaði og önnur félagsleg leigufyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu til þess að sinna betur þeim sem minna mega sín. |
|||
|