2023-06-05 17:06:54 CEST

2023-06-05 17:07:00 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Almenna leigufélagið ehf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Alma íbúðafélag hf.: Útboð á verðtryggðum og óverðtryggðum víxlum 8. júní 2023


Alma íbúðafélag hf.: Útboð á verðtryggðum og óverðtryggðum víxlum 8. júní 2023

ALMA íbúðafélag hf. heldur lokað útboð á þriggja mánaða óverðtryggðum víxlum ( AL 23 0915) og 6 mánaða verðtryggðum víxlum (AL I 23 1215) fimmtudaginn 8. júní nk. Víxlarnir eru óveðtryggðir.

Arctica Finance hf. hefur umsjón með útboðinu og kynningu þess fyrir hugsanlegum fjárfestum. Heildarútgáfuheimild í útboðinu er allt að 3.000 m.kr. Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu samþykktu flötu vöxtum. Víxlarnir eru gefnir út í 20 m.kr. nafnverðseiningum og verða skráðir á Nasdaq Iceland. Alma íbúðafélag hf. áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð.

Skila skal inn tilboðum á netfangið m@arctica.is fyrir klukkan 16:00 fimmtudaginn 8. júní 2023. Uppgjör viðskipta fer fram fimmtudaginn 15. júní 2023.

Ekki er um almennt útboð að ræða, og er þátttaka í útboðinu aðeins heimil aðilum sem teljast hæfir fjárfestar og hafa verið flokkaðir sem fagfjárfestar skv. 14. tl. 4. gr. laga um markaði fyrir fjármálagerninga nr. 115/2021 eða teljast viðurkenndir gagnaðilar. Útboðið er undanþegið gerð lýsingar á grundvelli a, c og d-liðar 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði og 1. mgr. 3. gr. laga nr. 14/2020 um sama efni. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreindan flokk skuldaskjals eru birt á vefsíðu félagsins: http://www.al.is/company/investors/bond-issuance/.

Nánari upplýsingar veitir:

Sigurður Rúnar Pálsson, fjármálastjóri Alma íbúðafélags hf., í síma 848 5290 eða sigurdur@al.is