2024-09-16 16:46:28 CEST

2024-09-16 16:46:30 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Síminn hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Síminn hf. - Breytingar á skipuriti og framkvæmdastjórn


Síminn hefur tekið ákvörðun um að breyta skipuriti félagsins og taka þær breytingar gildi í dag. Breytingarnar eru hluti af framtíðarsýn félagsins og endurspegla fyrst og fremst aukna áherslu á sölu, markaðssetningu og upplifun viðskiptavina. Breytingin felur í sér að tvö ný svið verða til og eitt svið er lagt niður.

Auglýsingamiðlun er nýtt tekjusvið þar sem auglýsingalausnir Símans og dótturfélagsins Billboard munu saman þróa og festa í sessi nútímalegar auglýsingalausnir ásamt frekari nýsköpun þar sem gögn og gervigreind spila stórt hlutverk. Vésteinn Gauti Hauksson er nýr framkvæmdastjóri Auglýsingamiðlunar en hann kemur til Símans frá Billboard.

Miðlar er nýtt svið þar sem sjónvarpsefni og markaðsmál sameinast undir stjórn Birkis Ágústssonar sem tekur sæti í framkvæmdastjórn. Sviðið mun stýra framleiðslu á innlendu sjónvarpsefni, innkaupum á erlendu sjónvarpsefni ásamt því að stýra ásýnd vörumerkis Símans. Nýtt svið mun styrkja enn frekar stærstu efnisveitu landsins, Sjónvarp Símans Premium og hefja markaðslega sókn Símans á einstaklings- og fyrirtækjamarkaði ásamt því að efla sjónvarpsþjónustu Símans í heild sinni fram á við.

Sviðið Sjálfbærni og menning er lagt niður og munu sjálfbærnimál færast til fjármálasviðs en verða áfram unnin þvert á félagið. Flokkunarreglugerð ESB og reglugerð um sjálfbærniupplýsingagjöf kalla á stórauknar mælingar og upplýsingagjöf sem fjármálasvið mun leiða. Við þessar breytingar mun Erla Ósk Ásgeirsdóttir láta af störfum hjá Símanum.

Vésteinn Gauti Hauksson framkvæmdastjóri Auglýsingamiðlunar kemur til Símans frá Billboard þar sem hann hefur undanfarin átta ár starfað sem framkvæmdastjóri félagsins. Áður starfaði Vésteinn sem forstöðumaður auglýsingasölu og markaðsrannsókna hjá Símanum á árunum 2013 til 2016. Vésteinn hefur áratuga reynslu af auglýsingasölu og rekstri í heimi fjölmiðla.

Birkir Ágústsson framkvæmdastjóri Miðla hefur leitt innlenda dagskrárgerð hjá Símanum undanfarin ár við góðan orðstír, en starfaði áður sem markaðsstjóri Storytel á Íslandi. Áður var Birkir markaðssérfræðingur hjá Símanum og 365 miðlum þar sem hann leiddi markaðs- og kynningarstarf sjónvarps.

María Björk Einarsdóttir:

„Þær breytingar sem við kynnum nú á skipuriti félagsins eru rökrétt framhald af þeirri þróun fyrirtækisins að leggja aukna áherslu á vöruþróun og þjónustuupplifun.

Sviðið Auglýsingamiðlun verður nýtt tekjusvið og við sjáum mikil tækifæri í því að þróa okkar þjónustuframboð áfram og festa auglýsingamiðlun í sessi sem sterka tekjustoð í kjölfarið af vel heppnaðri fjárfestingu í Billboard. Það er sérstaklega ánægjulegt að fá Véstein Gauta til liðs við framkvæmdastjórn Símans, því auk yfirgripsmikillar reynslu af auglýsingamarkaði býr hann yfir djúpum skilningi á sölu og þjónustu á fyrirtækjamarkaði þar sem við sjáum mikil sóknarfæri.

Birkir Ágústsson hefur getið sér gott orð síðustu ár í innlendri dagskrárgerð Sjónvarps Símans og hefur spilað lykilhlutverk í mörgum af stærstu framleiðsluverkefnum sem við höfum ráðist í undanfarin misseri. Hann hefur jafnframt víðtæka reynslu af markaðsmálum og hefur vakið eftirtekt fyrir störf sín á þeim vettvangi og við væntum mikils af honum.

Ég vil þakka Erlu Ósk Ásgeirsdóttur kærlega fyrir hennar framlag til fyrirtækisins á síðustu árum. Erla hefur leitt stór verkefni innan Símans með góðum árangri, þar með talið endurmörkun vörumerksins, stefnumótunarvinnu og innleiðingu sjálfbærnistjórnkerfis. Við óskum henni velfarnaðar á nýjum vettvangi.“

Erla Ósk Ásgeirsdóttir:

„Ég geng stolt frá borði. Þetta hafa verið viðburðarrík ár hjá Símanum. Við höfum áorkað miklu saman sem við getum öll verið stolt af og ég óska starfsfólki Símans alls hins besta í framtíðinni enda einstakur mannauður sem starfar hjá Símanum.“


Nánari upplýsingar veitir María Björk Einarsdóttir forstjóri Símans, maria@siminn.is.

Viðhengi