2009-05-29 11:10:33 CEST

2009-05-29 11:11:41 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
MP Fjárfestingarbanki hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

- Nýr forstjóri MP Banka


Gunnar Karl Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Skeljungs og stjórnarformaður
Tryggingamiðstöðvarinnar hefur verið ráðinn forstjóri MP Banka.  Gunnar Karl er
fæddur árið 1959 og lauk hagfræðiprófi frá Ohio University árið 1985.  Gunnar
hefur lengst af starfað hjá Skeljungi hf.  aðallega við fjármálastjórnun og
áhættustýringu.   Hann varð aðstoðarforstjóri Skeljungs árið 2000 og síðan
forstjóri árið 2003. 

Gunnar Karl hefur gegnt fjölda trúnaðarstarfa í íslensku atvinnulífi og er nú
m.a. stjórnarmaður í Samtökum atvinnulífsins og Samtökum verslunar og þjónustu.
MP Banki stendur nú á þeim tímamótum að vera orðinn alhliða viðskiptabanki. 
Það er mat stjórnar MP Banka að reynsla Gunnars og þekking á sviði stjórnunar
og stefnumótunar muni nýtast honum afar vel til að leiða uppbyggingu og sókn
bankans. 

Stjórn MP Banka þakkar Styrmi Þór Bragasyni, fráfarandi forstjóra,  vel unnin
störf í þágu bankans, ekki síst í aðdraganda og kjölfars bankahrunsins í haust.
Styrmir mun um 12 mánaða skeið starfa að verkefnum tengdum
fjárfestingabankahluta MP Banka, sitja í stjórnum nokkurra félaga fyrir
bankann  og  sinna verkefnum  erlendis. 

MP Banki var stofnaður árið 1999 og fagnaði 10 ára afmæli sínu þann 11. maí
síðastliðinn.  Fyrirtækið fékk fjárfestingarbankaleyfi árið 2003 og síðan
viðskiptabankaleyfi seint á síðasta ári.  MP banki náði að skila 860 milljóna
króna hagnaði árið 2008 og 15% ávöxtun eigin fjár þrátt fyrir mjög mótdræg ytri
skilyrði á fjármálamarkaði.   Viðskiptavinum hefur fjölgað mjög mikið
undanfarna mánuði og nú hefur bankinn haslað sér völl á almennum
viðskiptabankamarkaði til að geta veitt alhliða þjónustu.  Bankinn er með hæstu
markaðshlutdeild  í viðskiptum með skuldabréf í Kauphöll Íslands og er
aðalmiðlari í öllum flokkum ríkistryggðra verðbréfa.    Aðalskrifstofa bankans
er að Skipholti 50d auk þess sem hann rekur bankaútibú og þjónustumiðstöð að
Borgartúni 26.  Starfsmenn eru nú 75 talsins og hefur þeim fjölgað mikið á
þessu ári.