2016-05-04 11:16:35 CEST

2016-05-04 11:16:35 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Tryggingamiðstöðin hf. - Ársreikningur

Afkoma TM á fyrsta ársfjórðungi 2016


Á stjórnarfundi þann 4. maí 2016 samþykkti stjórn og forstjóri TM fyrsta
árshlutauppgjör félagsins fyrir árið 2016. Árshlutareikningurinn hefur hvorki
verið endurskoðaður né kannaður af endurskoðendum félagsins. 

Sigurður Viðarsson, forstjóri TM:

„Afkoma félagsins á fyrsta ársfjórðungi var lakari en áætlun gerði ráð fyrir og
skýrist það fyrst og fremst  af lægri fjárfestingatekjum. Mikill afkomubati
varð í vátryggingastarfseminni milli ára og var hún í samræmi við áætlun
fjórðungsins sem er ánægjulegt að sjá. Áætlun félagsins um 2,4 ma.kr. hagnað á
árinu 2016 stendur óbreytt þrátt fyrir nokkra óvissu á fjármálamörkuðum.“ 

Helstu niðurstöður fyrsta ársfjórðungs voru eftirfarandi:

                           1F2016  1F2015     ∆    ∆%  Á1F2016     ∆    ∆%
--------------------------------------------------------------------------
--------------------------------------------------------------------------
Eigin iðgjöld               3.328   2.938   390   13%    3.314    14    0%
Fjárfestingatekjur            409     872  -463  -53%      517  -108  -21%
Aðrar tekjur                   12      11     1    8%       11     1    9%
Heildartekjur               3.750   3.821   -71   -2%    3.842   -92   -2%
--------------------------------------------------------------------------
--------------------------------------------------------------------------
Eigin tjón                 -2.781  -2.987   206   -7%   -2.809    28   -1%
Rekstrarkostnaður            -891    -803   -88   11%     -889    -2    0%
Fjármagnsgjöld                -76     -13   -63   -        -50   -26   53%
Virðisrýrnun útlána           -18       4   -22   -         -3   -15   -  
Heildargjöld               -3.765  -3.799    34   -1%   -3.750   -15    0%
--------------------------------------------------------------------------
--------------------------------------------------------------------------
Hagnaður fyrir tekjuskatt     -15      22   -37   -         92  -107   -  
Tekjuskattur                   25      50   -25  -50%                     
Hagnaður                       10      72   -62  -86%                     
--------------------------------------------------------------------------
--------------------------------------------------------------------------
Fjárhæðir eru í milljónum króna.                                          



Betri afkoma í flestum greinaflokkum vátrygginga

Allir greinaflokkar vátrygginga skila betri afkomu en á sama tíma í fyrra ef
frá eru taldar sjótryggingar en þar bar nokkuð á meðal stórum tjónum. Slysa- og
ökutækjatryggingar eru þó enn með samsett hlutfall yfir 100% en fyrsti
fjórðungur ársins er að jafnaði sá tjónaþyngsti í þessum greinarflokkum vegna
tíðarfars og gera áætlanir félagsins ráð fyrir því. Samsett hlutfall lækkar um
19% stig milli ára og fer úr 126% í 107%. Áætlun félagsins gerði ráð fyrir því
að samsett hlutfall í vátryggingum yrði 108% á tímabilinu. 

Ávöxtun fjárfestingaeigna undir væntingum í krefjandi umhverfi.

Fjárfestingartekjur námu 409 m.kr. á fjórðungnum en það jafngildir 1,6% ávöxtun
fjárfestingaeigna. Afkoman var 108 m.kr. undir áætlun og skýrist af krefjandi
aðstæðum á verðbréfamörkuðum. Þannig hækkaði markaðsvísitala Gamma aðeins um
1,5% á fjórðungnum og lækkun var á erlendum hlutabréfamörkuðum. Þá hafði
styrking íslensku krónunnar  neikvæð áhrif á fjárfestingatekjur tímabilsins sem
nemur 63 m.kr. Á fjórðungnum fór fram endurmat á óskráðum hlutabréfum og
hækkuðu þau um rúmar 100 m.kr. Skýrist sú hækkun aðallega af viðskiptum með
undirliggjandi hlutabréf. 

A.M. Best staðfestir fjárhagslegan styrkleika TM

Þann 7. apríl síðastliðinn staðfesti matsfyrirtækið A.M. Best fjárhagslegan
styrkleika TM og er einkunnin B++. Mat A.M. Best nær einnig til lánshæfis og
fær TM lánshæfiseinkunnina bbb+. TM hefur frá árinu 2007 verið með
styrkleikamat frá alþjóðlegum matsfyrirtækjum, eitt íslenskra tryggingafélaga. 
Matið hefur þar til á síðasta ári verið framkvæmt af  Standard & Poor's en þá
var tekin ákvörðun um að A.M. Best myndi einnig meta fjárhagslegan styrkleika
TM enda er A.M. Best sérhæft í mati á vátryggingafélögum. Nú liggur fyrir
ákvörðun um að A.M. Best muni eitt framkvæma árlegt mat á yfirstandandi ári og
því gaf S&P´s út svokallaða afskráningar matseinkunn fyrir TM þann 3. maí
síðast liðinn. Mat á fjárhagslegum styrkleika veitir TM tækifæri til að sækja
vátryggingaviðskipti á erlenda markaði og er því mikilvægur liður í
vaxtarmöguleikum félagsins. 



Lykiltölur fyrsta ársfjórðungs voru eftirfarandi:

                               1F2016  1F2015       ∆    ∆%  Á1F2016    ∆    ∆%
-------------------------------------------------------------------------------
-------------------------------------------------------------------------------
Hagnaður á hlut (kr.)            0,01    0,10   -0,09  -90%                    
Arðsemi eigin fjár (m.v. 12m)    0,4%    2,5%                                  
Eiginfjárhlutfall               30,4%   28,0%                                  
Handbært fé frá rekstri           921     766     155   20%                    
Vátryggingastarfssemi                                                          
-------------------------------------------------------------------------------
-------------------------------------------------------------------------------
Tjónshlutfall                   83,6%  101,7%  -18,1%            85%  -1%      
Kostnaðarhlutfall               23,7%   24,1%   -0,4%            24%   0%      
Samsett hlutfall               107,3%  125,8%  -18,5%           108%  -1%      
Hagnaður/tap                     -107    -542     435  -80%     -127   20  -16%
Framlegð                         -240    -756     516  -68%     -274   34  -12%
Fjárfestingar                                                                  
-------------------------------------------------------------------------------
-------------------------------------------------------------------------------
Ávöxtun fjáreigna                1,6%    3,3%                   2,0%           
Hagnaður/tap                       10      72     -62  -86%                    
-------------------------------------------------------------------------------

Fjárhæðir eru í milljónum króna.



Kynningarfundur kl. 15:45 í dag.

TM býður til opins kynningarfundar um afkomu félagsins á fyrsta ársfjórðungi
2016 þann 4. maí kl. 15:45. Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum TM að Síðumúla
24, 4. hæð. Þar kynnir Sigurður Viðarsson forstjóri uppgjörið og svarar
spurningum. 

Árshlutareikning og afkomutilkynningu verður hægt að nálgast á vef félagsins
www.tm.is. Kynning á uppgjörinu verður einnig aðgengileg á sama stað við upphaf
kynningarfundar. Fylgjast má með fundinum í gegnum vefinn á slóðinni:
https://global.gotomeeting.com/join/600820501 



Fjárhagsdagatal 2016

2. ársfjórðungur: 24. ágúst 2016
3. ársfjórðungur: 27. október 2016
4. ársfjórðungur: 23. febrúar 2017



Nánari upplýsingar.

Sigurður Viðarsson, forstjóri TM

s: 515-2609

sigurður@tm.is