2015-09-02 14:22:34 CEST

2015-09-02 14:23:35 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Tryggingamiðstöðin hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

Tryggingamiðstöðin hf. - Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar.


Á aðalfundi Tryggingamiðstöðvarinnar hf. þann 12. mars 2015 var samþykkt að
veita stjórn heimild til að kaupa eigin hluti með framkvæmd endurkaupaáætlunar,
sbr. II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005, um innherjaupplýsingar og
markaðssvik. Stjórn TM hefur á grundvelli fyrrgreindrar samþykktar aðalfundar
félagsins tekið ákvörðun um endurkaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka
hlutafé félagsins. Endurkaupaáætlunin verður framkvæmd af MP Straumi sem tekur
þar með allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu
kaupanna óháð félaginu. Fjöldi hluta sem keyptur skal samkvæmt
endurkaupaáætluninni verður að hámarki 31.000.000 hlutir, en það jafngildir
4,2% af útgefnu hlutafé félagsins, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði
aldrei meiri en 600 milljónir króna. Kaupin verða framkvæmd í áföngum með þeim
skilyrðum að kaup hvers dags mega að hámarki vera 25% af meðaltali daglegra
viðskipta með hlutabréf félagsins í Kauphöll Íslands í ágúst 2015 en það
jafngildir að dagleg kaup megi að hámarki vera 639.303 hlutir. Endurgjald fyrir
hvern hlut skal ekki nema hærra verði en nemur síðustu óháðu viðskiptum eða
hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði, hvort sem reynist hærra. Viðskipti
félagsins með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina skulu tilkynnt í
samræmi við lög og reglugerðir. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar
aðalfundur félagsins 2016 verður haldinn ef kaupum samkvæmt áætluninni er ekki
lokið áður.  Henni lýkur þó í síðasta lagi 31. mars 2016. 

Reykjavík,  2. september 2015.

Tryggingamiðstöðin hf.