2017-05-19 16:54:49 CEST

2017-05-19 16:54:49 CEST


SÄÄNNELTY TIETO

Islanti
Vátryggingafélag Íslands hf. - Ársreikningur

VÁTRYGGINGAFÉLAG ÍSLANDS: Skýrsla um gjaldþol og fjárhagslega stöðu (SFCR) 2016


Vátryggingafélag Íslands hf. (VÍS) hefur gefið út skýrslu um gjaldþol og
fjárhagslega stöðu fyrir árið 2016. Í skýrslunni eru ítarlegar upplýsingar um
starfsemi félagsins, gjaldþol og fjárhagslega stöðu.  Skýrslan er gefin út í
samræmi við kröfur laga um vátryggingastarfsemi, nr. 100/2016. 

Með útgáfu skýrslunnar eru markaðsaðilum veittar upplýsingar sem er ætlað að
auka skilning á starfsemi félagsins. Þar er fjallað um stjórnkerfi  félagsins,
rekstur og afkomu af vátryggingastarfsemi og fjármálastarfsemi, skipulag og
framkvæmd áhættustýringar, innri stjórnun og eftirlitskerfi, áhættusnið og
aðferðir við mat á gjaldþolsstöðu og eiginfjárstýringu. 

Það er von félagsins að skýrslan veiti markaðsaðilum, viðskiptavinum félagsins
og öðrum lesendum góða innsýn í rekstur félagsins. 

Hægt er að nálgast skýrsluna á fjárfestasíðu VÍS,
https://vis.is/vis/starfsemi-og-rekstur/stjornkerfisskyrsla-sfcr/