|
|||
2017-10-18 14:06:38 CEST 2017-10-18 14:06:38 CEST REGULATED INFORMATION Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarLánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða úr viðbótarútgáfuLánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokki LSS150434 þann 17. október 2017. Uppgjör viðskipta fer fram föstudaginn 19. október 2017. Samkvæmt 1. gr. í skilmálum aðalmiðlarasamnings í tengslum við útgáfu skuldabréfa Lánasjóðs sveitarfélaga stendur aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á meðalverði samþykktra tilboða til kl. 12 á næsta virka degi eftir að útboði lýkur. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í réttu hlutfalli við það magn sem þeir hafa keypt í útboðinu. Alls bárust tilboð í LSS150434 að nafnvirði ISK 1.050.000.000 á bilinu 2,49% - 2,53%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 850.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,51%. Að þessu sinni óskuðu aðalmiðlarar eftir að nýta sér kauprétt fyrir viðbót í LSS150434 fyrir ISK 55.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,51% og hefur Lánasjóðurinn ákveðið að verða við þeim óskum. Heildarmagn seldra bréfa í útboðinu í LSS150434 að meðtaldri viðbótarútgáfunni er ISK 905.000.000. Heildarstærð flokksins er nú ISK 27.238.352.565.
Nánari upplýsingar veitir: |
|||
|