2014-05-14 18:01:00 CEST

2014-05-14 18:01:01 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útgáfa á RIKS 33 0321 í tengslum við gjaldeyrisútboð


Í dag 14. maí fór fram gjaldeyrisútboð hjá Seðlabanka Íslands þar sem bankinn
bauðst til þess að kaupa evrur gegn afhendingu á ríkisbréfum í verðtryggða
flokknum RIKS 33 0321. Aðgerðin sem er liður í losun hafta á
fjármagnsviðskiptum mun draga úr árlegri endurfjármögnunarþörf ríkissjóðs.
Samtals voru seld bréf í flokknum fyrir kr. 255.104.928 að nafnverði. 

Samþykkt gengi evru gangvart krónu var 190 í útboðinu.

Þann 12. maí var tilkynnt um fast verð bréfanna sem er 111,346340 kr. með
áföllnum vöxtum og verðbótum (e. dirty price) miðað við uppgjörsdag 16. maí
2014 (krafa 2,81%). 1 



 ____________________

1 Hreint verð (e. clean price) 102,75