2014-01-17 10:04:02 CET

2014-01-17 10:05:02 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Garðabær - Fyrirtækjafréttir

Niðurstöður skuldabréfaútboðs Garðabæjar


Garðabær, í samstarfi við Markaði Íslandsbanka, hélt þann 11. janúar
síðastliðinn útboð á skuldabréfum í stækkuðum skuldabréfaflokki
sveitarfélagsins, GARD 13 1. 

Alls bárust tilboð að nafnverði kr. 2.120.000.000 með ávöxtunarkröfu á bilinu
2,57% til 3,24%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnverði kr. 250.000.000 á
ávöxtunarkröfunni 2,63%. Útistandandi voru fyrir að nafnverði kr. 1.187.000.000
og verður heildarstærð flokksins því nú að nafnverði kr. 1.437.000.000. 

Gert er ráð fyrir að nýútgefin skuldabréf verði tekin til viðskipta í Kauphöll
Íslands mánudaginn 20. janúar nk. 



Nánari upplýsingar veitir:

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar
s: 525-8500,
gunnar@gardabaer.is