|
|||
2010-12-27 16:44:31 CET 2010-12-27 16:45:32 CET REGULATED INFORMATION Sláturfélag Suðurlands svf. - FyrirtækjafréttirFjárhagsleg endurskipulagning-- Vinna við fjárhagslega endurskipulagningu hefst í janúar og áætlað að henni ljúki eigi síðar en 30. júní 2011. -- Endurskipulagningin er unnin í samstarfi við Arion banka hf. sem er aðal lánveitandi félagsins. -- Stefnt er að því að lán við Arion banka verði endurfjármögnuð og aðlagaðar betur að greiðslugetu félagsins til lengri tíma. -- Öll lán og skuldir við lánadrottna eru í skilum. Fjárhagsleg endurskipulagning á ekki að hafa nein áhrif á skuldir við lánadrottna og snýr eingöngu að endurfjármögnun lána við Arion banka. Við fall bankanna haustið 2008 sköpuðust óvenjulegar og sérstakar aðstæður á íslenskum fjármálamarkaði. Í framhaldi af því versnaði fjárhagsstaða Sláturfélagsins vegna mikillar veikingar íslensku krónunnar þar sem skuldir Sláturfélagsinsins við lánastofnanir eru að stærstum hluta í erlendri mynt. Í árslok 2008 var eiginfjárhlutfall samstæðunnar 16% en hafði verið 36% í árslok 2007. Á undanförnum tveimur árum hefur verið gripið til fjölþættra hagræðingaraðgerða til að bæta rekstur samstæðunnar. Í lok júní 2010 var eiginfjárhlutfall samstæðunnar 27%. Sláturfélagið hefur komist að samkomulagi við viðskiptabanka sinn Arion banka hf. að hefja í janúar n.k. vinnu við fjárhagslega endurskipulagningu félagsins. Áætlað er að henni sé lokið eigi síðar en 30. júní 2011. Langtímalán samstæðunnar voru 3.433 milljónir króna 30. júní 2010 og eru að stærstum hluta við Arion banka. Stefnt er að því að lán við Arion banka verði endurfjármögnuð og afborganir þeirra verði betur aðlagaðar að greiðslugetu félagsins til lengri tíma með jafnari árlegum afborgunum. Öll lán og skuldir við lánadrottna eru í skilum. Fjárhagsleg endurskipulagning Sláturfélagsins á ekki að hafa nein áhrif á skuldir við lánadrottna og snýr eingöngu að endurfjármögnun lána við Arion banka. Frekari upplýsingar veita: Steinþór Skúlason, forstjóri í síma 575 6000 - steinthor@ss.is Hjalti H. Hjaltason, fjármálastjóri í síma 575 6000 - hjalti@ss.is |
|||
|