2012-07-03 15:38:09 CEST

2012-07-03 15:39:09 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Akureyrarbær - Fyrirtækjafréttir

Boð um skuldabréfaskipti


Akureyrarbær býður eigendum skuldabréfaflokksins AKU 03 1 sem skráður er í
kauphöllinni og er á gjalddaga í mars 2013 að kaupa í skráðum flokki,  AKU 10
1, og greiða fyrir með AKU 03 1.  Ávöxtunarkrafa AKU 03  1 sem boðið  er uppá
er 2,50% en ávöxtunarkrafa AKU 10 1 er 3,60%. 

Eigendum AKU 03 1 er gefinn frestur til föstudagsins 06.07.12 til að ákveða
hvort þeir vilja ganga að tilboðinu.  Áætlað er að uppgjör fari fram í vikunni 
9.-13. júlí n.k. 

Áhugasömum er bent á að hafa samband við Íslensk verðbréf hf, Ásgeir Már
Ásgeirsson, asgeir@iv.is eða Baldur Snorrason, baldur@iv.is í síðasta lagi
fyrir klukkan 16:00, föstudaginn 6. júlí 2012