2013-04-11 13:45:00 CEST

2013-04-11 13:45:01 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 13 0715 OG RIKV 13 1015


Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 13 0715 og RIKV 13 1015  með
tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. 

Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama
verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið.
Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar
miðað við 360 daga ár (Actual/360). 

                    Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar:

RIKV 13 0715:

Alls bárust 3 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 750 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 750 m.kr. að nafnverði á verðinu 99,247 (flatir vextir
3,00%). 

RIKV 13 1015:

Alls bárust 5 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 2.120 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 1.920 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,310 (flatir
vextir 3,38%).