2015-08-25 10:12:02 CEST

2015-08-25 10:12:56 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íslandsbanki hf. - Árshlutareikningur - 6 mán.

Islandsbanki hf. : Afkoma fyrri árshelmings 2015


HELSTU NIÐURSTÖÐUR

1H 2015
  * Hagnaður bankans eftir skatta var 10,8 ma. kr. á fyrri árshelmingi 2015
    samanborið við 14,7 ma. kr. á sama tímabili 2014 en þá voru tekjur af
    einskiptisliðum umfangsmeiri.
  * Arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi miðað við 14% eiginfjárhlutfall A
    var 13,9% samanborið við 12,4% á sama tímabili 2014.
  * Eiginfjárhlutfallið er sterkt, var 28,3% (mars15: 28,4%) og
    eiginfjárhlutfall A (Tier 1) var 25,8% (mars15: 25,7%).
  * Hreinar vaxtatekjur voru 13,6 ma. kr. á fyrri árshelmingi 2015 (1H14: 13,6
    ma. kr.). Vaxtamunur var 2,9% á 1H15yrri árshelmingi (1H14: 3,1%).
  * Hreinar þóknanatekjur voru 6,4 ma. kr. (1H14: 5,7 ma. kr.) eða 13,2% aukning
    milli ára.
  * Kostnaðarhlutfall var 56,0%  (1H14: 55,6%).  Bankaskattur og
    einskiptiskostnaður er undanskilinn við útreikning kostnaðarhlutfalls.
  * Vogunarhlutfall var 18,3% við lok tímabilsins, sem telst hóflegt í
    alþjóðlegum samanburði.
  * Hlutfall lána með varúðarafskrift og lána með vanskil umfram 90 daga var
    2,7% (mars 15: 3,0%).
  * Heildareignir voru 976 ma. kr. (mars15:  926ma. kr.).

2F 2015
  * Hagnaður bankans eftir skatta var 5,4 ma. kr. á öðrum ársfjórðungi (2F14:
    6,4 ma. kr.)
  * Arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi miðað við 14% eiginfjárhlutfall A
    var 12,8% á fjórðunginum (2F14: 9,3%)
  * Hreinar vaxtatekjur voru 7,4 ma. kr. á öðrum ársfjórðungi (2F14: 6,9 ma.
    kr.)
  * Hreinar þóknanatekjur voru 3,5 ma. kr. á 2F15  (2F14:  2,8 ma. kr.) sem er
    24,8% aukning.

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka:"Afkoma bankans á fyrri helmingi ársins var góð. Grunnreksturinn styrktist á
tímabilinu sem endurspeglast í heilbrigðum vexti útlána og innlána, sem og í
þóknanatekjum sem jukust um 13% milli ára. Útlán jukust um 3% frá áramótum og er
það í samræmi við áætlaðan hagvöxt á tímabilinu. Ánægjulegt var fyrir bankann að
hljóta hærri einkunn í fjárfestingarflokki hjá bæði Fitch og S&P.

Launakostnaður stendur í stað og mun bankinn halda áfram að vinna að
hagræðingaraðgerðum til kostnaðarlækkunar. Eiginfjárhlutfall bankans helst áfram
sterkt sem og lausafjárstaða bankans. Það er afar mikilvægt nú þegar við horfum
fram á losun fjármagnshafta. Íslandsbanki gegnir þar mikilvægu hlutverki og
vinnur að þeirri áætlun með eigendum sínum og stjórnvöldum. Stefnt er að
töluverðri breytingu á efnahagsreikningi bankans með rammasamkomulagi sem gert
var við Glitni.

Viðskiptavinir okkar kalla í auknum mæli eftir að geta stundað bankaviðskipti
hvar og hvenær sem er og við leggjum áherslu á að koma til móts við þær óskir.
Íslandsbanka Appið er í dag sú dreifileið sem er í mestum vexti og er í stöðugri
þróun. Það sem af er ári höfum við séð 43% aukningu virkra notenda og 37%
notenda heimsækja appið að meðaltali einu sinni eða oftar á dag. Við höfum lagt
áherslu á að bæta virkni Netbankans og kannanir sýna að viðskiptavinir okkar eru
hvað ánægðastir meðal netbankanotenda.

Ný samfélagsskýrsla Íslandsbanka var birt í gær en skýrslan uppfyllir að fullu
viðmið GRI. Í skýrslunni  er farið yfir níu metnaðarfullar áherslur bankans í
samfélagslegri ábyrgð. Þær snúa að ábyrgum lánveitingum, ábyrgum fjárfestingum,
ábyrgum innkaupum, samgöngum, jafnrétti, fræðslu, styrkjum bankans, öryggi
viðskiptavina og að lokum góðum málefnum. Bankinn er stoltur samstarfsaðili
Reykjavíkurmaraþonsins sem haldið var á dögunum þar sem 15.000 manns tóku þátt
og söfnuðust 78 milljónir til góðra málefna. "



Í dag, þriðjudaginn 25. ágúst kl. 12.30, munu Birna Einarsdóttir, bankastjóri
Íslandsbanka, og Jón Guðni Ómarsson, fjármálastjóri, kynna afkomu bankans á
opnum fjárfestafundi og svara fyrirspurnum. Fundurinn fer fram á íslensku og er
haldinn í höfuðstöðvum bankans að Kirkjusandi.  Boðið verður upp á veitingar.
Skrá mig á fjárfestafund á Kirkjusandi.
Einnig er markaðsaðilum boðið upp á símafund kl. 14.00 á ensku. Farið verður
yfir helstu atriði í íslenskum efnahagsmálum og afkomu bankans. Vinsamlegast
skráið ykkur á símafundinn með að senda póst á ir@islandsbanki.is. Fundargögn og
aðgangsorð vegna símafundar verða send út til skráðra aðila 2 tímum fyrir
fundinn.

Öll gögn má nálgast á vef fjárfestatengsla,
www.islandsbanki.is/fjarfestatengsl.




Nánari upplýsingar veita:
Fjárfestatengill - Guðbjörg Birna Björnsdóttir, ir@islandsbanki.is og í síma
440 4752.
Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 440 4005.

[HUG#1947308]