2014-11-11 17:12:29 CET

2014-11-11 17:13:30 CET


SÄÄNNELTY TIETO

Islanti
Kópavogsbær - Fyrirtækjafréttir

Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar 2015 og áætlun fyrir 2016-2018


Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar lögð fram



Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2015 var lögð fram til fyrri umræðu í
bæjarstjórn Kópavogs í dag. Þá var einnig lögð fram langtímaáætlun fyrir
tímabilið 2016 til 2018. 

Í áætluninni kemur fram að A-hluti bæjarsjóðs verður rekinn með 106 milljón
króna rekstrarafgangi á næsta ári. 



Sé skoðuð niðurstaða samstæðu Kópavogsbæjar þá verður hún rekin með 357 milljón
króna rekstrarafgangi á næsta ári samkvæmt fjárhagsáætluninni. 



„Fjárhagsáætlunin sýnir að staða Kópavogs er sterk. Hins vegar er ljóst að ef
þessi áætlun er borin saman við þá síðustu að þeir kjarasamningar sem hafa
verið gerðir á árinu við fjölmörg stéttarfélög koma til með að hafa veruleg
áhrif á reksturinn á næsta ári. 



Engu að síður er rekstrarafgangur í heildina séð vel við unandi. Þá er ekkert
gert ráð fyrir óreglulegum tekjum eins og sölu lóða sem að öllum líkindum mun
bæta stöðuna enn frekar. Þá heldur skuldahlutfall áfram að lækka sem er mjög
jákvætt,“ segir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogsbæjar. 



Gangi áætlunin eftir verður skuldaviðmið bæjarins áramótin 2015/2016 166,6%.
Gert er ráð fyrir að Kópavogsbær komist undir 150% viðmið árið 2017. Um síðust
áramót var skuldaviðmiðið 185,1 %. 



Meðfylgjandi er fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2015 og langtímaáætlun
fyrir árin 2016 til 2018.