2015-03-12 19:26:50 CET

2015-03-12 19:27:53 CET


REGULATED INFORMATION

This message has been corrected. Click here to view the corrected message

Islandic
Vátryggingafélag Íslands hf. - Hluthafafundir

VÍS - Niðurstöður aðalfundar og ársskýrsla félagsins


Á aðalfundi Vátryggingafélags Íslands sem haldinn var í dag var samþykkt
tillaga stjórnar um að félagið greiði hluthöfum arð sem nemur kr. 1,03 á hlut
fyrir árið 2014. Þá var sjálfkjörið í nýja stjórn VÍS. 

Heildarfjárhæð arðgreiðslunnar er um 2.500 milljónir króna. Arðsákvörðunardagur
er 12. mars 2015 sem þýðir að skráðir hluthafar í lok dags 16. mars 2015
(arðsréttindadagur) eiga rétt á arðgreiðslu. Arðleysisdagur er því 13. mars
2015 sem er fyrsti viðskiptadagur eftir arðsákvörðunardag og útborgunardagur er
9. apríl 2015. 

Aðalfundur heimilaði stjórn félagsins að kaupa á næstu 18 mánuðum hluti í
félaginu, í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða
til að setja upp formlega endurkaupaáætlun, þannig að það ásamt dótturfélögum
þess eigi, að öðrum lagaskilyrðum fullnægðum, allt að 10% af hlutafé þess. 

Aðalfundur samþykkti einnig að lækka hlutafé félagsins úr kr. 2.502.757.040 að
nafnverði í kr. 2.438.480.516 að nafnverði, og að eigin hlutum félagsins að
nafnverði kr. 64.276.524 sé þannig eytt. 

Stjórn VÍS skipa:

Aðalstjórn

Ásta Dís Óladóttir

Bjarni Brynjólfsson

Guðrún Þorgeirsdóttir

Helga Jónsdóttir

Steinar Þór Guðgeirsson



Varastjórn

Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir

Davíð Harðarson



Ný stjórn hélt stjórnarfund eftir aðalfundinn og skipti með sér verkum. Guðrún
Þorgeirsdóttir var kjörin formaður stjórnar og Ásta Dís Óladóttir varaformaður.
Í endurskoðunarnefnd voru kjörin Vignir Rafn Gíslason, Helga Jónsdóttir og
Bjarni Brynjólfsson. Í starfskjaranefnd voru kjörin Ásta Dís Óladóttir, Helga
Jónsdóttir og Bjarni Brynjólfsson.