2016-09-08 13:55:30 CEST

2016-09-08 13:55:30 CEST


SÄÄNNELTY TIETO

Islanti
Kópavogsbær - Ársreikningur

Árshlutauppgjör Kópavogsbæjar 2016


Rekstrarafgangur hjá Kópavogsbæ 322 milljónir

Meðfylgjandi er óendurskoðað og ókannað árshlutauppgjör Kópavogsbæjar fyrir
fyrstu sex mánuði ársins 2016. Uppgjörið er gert í samræmi við lög og
reglugerðir en þó þannig að ekki eru samdar sérstakar skýringar með uppgjörinu
aðrar en þær sem eru í meðfylgjandi greinargerð.  Uppgjörið er notað innanhúss
til að athuga hvernig rekstrarkostnaður hefur þróast og myndar það grunn að
útkomuspá ársins 2016 og fjárhagsáætlun ársins 2017. 



Rekstrarafgangur hjá Kópavogsbæ 322 milljónir

Rekstrarafgangur samstæðu Kópavogsbæjar var 322 milljónir króna á fyrri hluta
árs 2016. Gert hafði verið ráð fyrir tapi upp á 37 milljónir króna. Ástæða
mismunarins er einkum að skatttekjur eru heldur hærri en reiknað var með og að
bókuð er tekjufærsla vegna lóðaúthlutana, sem ekki var á áætlun. 

Þetta kemur fram í árshlutareikningi Kópavogs fyrir 1. janúar til 30. júní 2016
sem lagður var fram í bæjarráði í dag, 8. september. 

„Reksturinn gengur vel og er í samræmi við áætlanir. Það gengur hraðar að lækka
skuldahlutfall en áætlanir gerðu ráð fyrir og við erum því bjartsýn á
framhaldið. En það má benda á að við höfum verið í stöðugu efnahagsumhverfi og
það eru vísbendingar um að verðbólgan kunni að hækka sem myndi bitna á
bæjarsjóði eins og landsmönnum öllum,“ segir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri
Kópavogs. 

Þess má geta að á fyrri helmingi árs falla um 48-49% af skatttekjum ársins en
hins vegar stærri hluti útgjalda hjá ákveðnum sviðum. Samkvæmt uppgjörinu hafa
heildarskuldir samstæðu bæjarins lækkað nettó frá áramótum um 234 milljónir
þrátt fyrir að verðtryggð lán hafi hækkað á fyrri árshelmingi vegna verðbólgu
og að lífeyrisskuldbindingar hafi hækkað um 195 milljónir króna. 

Rekstrarniðurstaða samstæðu fyrir fjármagnsliði, afskriftir og
lífeyrisskuldbindingar var jákvæð um 2.391 milljónir króna. Þetta þýðir að
framlegðarhlutfall samstæðu var um 18%, en í reglum frá eftirlitsnefnd um
fjármál sveitarfélaga er gert ráð fyrir að framlegðarhlutfallið sé á bilinu
15-20%.