2016-09-12 11:00:00 CEST

2016-09-12 11:00:00 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning Sjóvá um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 36 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 65.601 eigin hluti að
kaupverði 852.852 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: 

Dagsetning   Tími  Keyptir hlutir  Viðskiptaverð (gengi)  Kaupverð (kr.)
------------------------------------------------------------------------
------------------------------------------------------------------------
07.09.2016  14:10           8.403                  13,05         109.659
08.09.2016  12:35          19.066                  13,00         247.858
------------------------------------------------------------------------
08.09.2016  14:07          19.066                  13,00         247.858
------------------------------------------------------------------------
09.09.2016  09:40          19.066                  12,98         247.477
------------------------------------------------------------------------
   Samtals                 65.601                                852.852
------------------------------------------------------------------------



Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun
félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 9. júní 2016. 

Sjóvá átti 21.062.145 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum
21.127.746 eigin hluti eða sem nemur 1,35% af útgefnum hlutum í félaginu. 

Sjóvá hefur keypt samtals 11.211.973 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem
nemur 0,72% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra
129.663.644 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 25.000.000
hluta eða sem nemur 1,6% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó ekki meira en
300.000.000 kr. að kaupverði. Endurkaupaáætlunin er í gildi til 30. september
2016 nema ef kaupum samkvæmt henni verður lokið áður. 

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um
hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og
markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í
endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“ 



Nánari upplýsingar veitir:

Hermann Björnsson, forstjóri s. 440-2000