2016-09-12 17:45:37 CEST

2016-09-12 17:45:37 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reitir fasteignafélag hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 36. viku 2016 keypti Reitir fasteignafélag hf. 700.000 eigin hluti fyrir
65.275.000 kr. eins og hér segir: 

Dagsetnin  Tími        Keyptir  Viðskipta-v    Kaupverð       Eigin hlutir eftir
g                       hlutir          erð                            viðskipti
--------------------------------------------------------------------------------
7.9.2016   10:44       350.000         92,5  32.375.000               16.393.654
--------------------------------------------------------------------------------
9.9.2016   14:04       350.000         94,0  32.900.000               16.743.654
--------------------------------------------------------------------------------
Samtals                700.000               65.275.000                         
--------------------------------------------------------------------------------

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurnýjaða
endurkaupaáætlun félagsins sem hófst þann 16. mars 2016, sbr. tilkynningu til
Kauphallar þann 15. mars 2016, með þeirri breytingu sem tilkynnt var þann 2.
september 2016. 

Reitir hafa nú keypt samtals 16.743.654 hluti í félaginu sem samsvarar 93,02%
af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun.
Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 1.424.304.843 krónum sem samsvarar
94,95% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú
samtals 18.146.874 hluti, eða 2,45% af heildarhlutafé félagsins. 

Samkvæmt endurkaupaáætluninni, eftir framangreinda breytingu, verða að hámarki
keyptir 18.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 1.500
milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar öðru hvoru
framangreindu hefur verið náð, eða á aðalfundardegi félagsins 2017.
Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og
viðauka við reglugerð nr. 630/2005.