2008-10-23 23:12:43 CEST

2008-10-23 23:13:42 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hf. Eimskipafélag Íslands - Fyrirtækjafréttir

Eimskip semur við skuldabréfaeigendur


-Mikilvægur stuðningur meðan unnið er að endurskipulagningu og endurfjármögnun
félagsins. 
-95% skuldabréfaeigenda hafa þegar skrifað undir
-Söluferli eigna á áætlun sem mun styrkja fjárhagsstöðu félagsins.
-Flutningastarfsemin er í góðum rekstri, dagleg starfsemi og þjónusta við
viðskiptavini tryggð. 

Hf. Eimskipafélag Íslands hefur samið við skuldabréfaeigendur í flokkum HFEIM
071 og HFEIM 072. 

Eimskip hefur þegar fengið undirritað samþykki 95% skuldabréfaeigenda og áfram
er unnið að því að ná sama samkomulagi við þann hluta eigenda skuldabréfa sem
hefur ekki gengið frá samningi við félagið. 

Gylfi Sigfússon forstjóri Hf. Eimskipafélags Íslands: "Eins og áður hefur komið
fram vinnur félagið að sölu eigna og því mikilvægt að skapa frið um félagið á
meðan söluferli er í gangi. Stjórnendur félagsins vinna nú að
endurskipulagningu ásamt endurfjármögnun félagsins og er stuðningur
skuldabréfaeigenda því mikilvægt skref í þeirri vinnu. Með því að veita Eimskip
þetta svigrúm er verið að vernda eignir þess og þar með að takmarka áhættu
kröfuhafa. Flutningastarfsemi Eimskips er í góðum rekstri, dagleg starfsemi og
þjónusta við viðskiptavini er sem áður tryggð. Söluferli eigna gengur samkvæmt
áætlun sem mun styrkja verulega fjárhagsstöðu félagsins."

Í ofangreindum flokkum skuldabréfa skuldbatt Eimskip sig við útgáfu þeirra til
að tryggja að bókfært eigið fé væri ekki lægra en 25% frá og með
árshlutauppgjöri fyrsta ársfjórðungs 2008. Ljóst er að Eimskip getur ekki
tryggt þau viðmið og því hefur verið samið við 95% eigenda ofangreindra
skuldabréfaflokka að þeir falli frá rétti sínum til að gjaldfella kröfu sína á
hendur félaginu þrátt fyrir að eiginfjárhlutfallið sé eða verði lægra en 25%
fram að gjalddaga. Eimskip hefur nú heimild til að fresta gjalddögum
skuldabréfanna þar til 30 dögum eftir sölu á frystigeymslustarfsemi félagsins í
Norður Ameríku  en þó eigi síðar en 30. júní 2009. Þá verði öllum
vaxtagreiðslum frestað til gjalddaga og gjaldfallnir vextir bætast við
höfuðstól. Skuldabréfaflokkur HFEIM 071 er 1.500 mkr. að nafnvirði og
skuldabréfaflokkur HFEIM 072 er 8.000 mkr. að nafnvirði.