2023-06-08 12:27:45 CEST

2023-06-08 12:27:45 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjavíkurborg - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Niðurstaða úr skuldabréfaútboði Reykjavíkurborgar


Reykjavíkurborg hefur lokið útboði í skuldabréfaflokkunum RVK 32 1 og RVKG 48 1.

Í heildina bárust tilboð að nafnvirði 8.260 m.kr. í flokkana.

Heildartilboð í RVK 32 1 voru samtals 6.910 m.kr. að nafnvirði á bilinu 3,84%-4,04%. Ákveðið var að taka tilboðum, samtals að nafnvirði 2.710 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,90%. Útistandandi fyrir útboð voru 28.183 m.kr. að nafnvirði að meðtöldum eigin bréfum Reykjavíkurborgar vegna viðskiptavaktar 960 m.kr. Heildarstærð flokksins er nú 30.893 m.kr. að nafnverði.

Heildartilboð í RVKG 48 1 voru samtals 1.350 m.kr. að nafnvirði á ávöxtunarkröfunni 3,33%-3,40%. Ákveðið var að taka tilboðum, samtals að nafnvirði 950 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,35%. Útistandandi fyrir útboð voru 12.240 m.kr. að nafnvirði að meðtöldum eigin bréfum Reykjavíkurborgar vegna viðskiptavaktar 800 m.kr. Heildarstærð flokksins er nú 13.190 m.kr. að nafnverði.

Uppgjörsdagur er þriðjudagurinn 13. júní 2023.

Viðskiptavakar Reykjavíkurborgar, Arion banki, Íslandsbanki, Kvika banki og Landsbanki, höfðu umsjón með útboðinu.

Nánari upplýsingar veitir:

Helga Benediktsdóttir
Skrifstofustjóri fjárstýringar- og innheimtuskrifstofu
Netfang: helga.benediktsdottir@reykjavik.is        
Sími: 898-8272